Þó fyrr hefði verið gætu sumir sagt nú þegar ákveðið hefur verið að bæta Fæðingarkirkjunni í Betlehem á Heimsminjaskrá Sameinuðu þjóðanna sem mikilvægur arfur mannkyns. Það er í þeirri kirkju sem kristnir vilja meina að Jesú Kristur hafi fæðst.

Hún líkist meira virki en kirkju að utan en staðurinn þar sem Jesú Kristur er sagður hafa fæðst er á leiðinni á Heimsminjaskrá
Sé það sannleikurinn, sem margir efast um, er auðvitað fyrir langa löngu kominn tími að setja fæðingarstað meistarans á stall merkilegustu bygginga mannkyns en það sem hefur komið í veg fyrir það lengi vel er sú staðreynd að kirkjan er á hernumdu svæði Ísraela á Vesturbakkanum í Palestínu jafnvel þó Palestínumenn fari með sjálfsstjórn á svæðinu.
Viðurkenningin kemur í kjölfar þess að Palestína fékk ingöngu í heimsklúbb UNESCO síðastliðinn vetur þvert á vilja og óskir Ísraela og Bandaríkjamanna sem segja slíkt þýða að ríki heims séu að leggja blessun sína yfir eiginlegt ríki Palestínu.
Palestínumenn fögnuðu niðurstöðunni mjög og hafa þegar hafið undirbúning að því að fá fleiri merkisstaði á svæðinu inn á sama lista heimsminja.






