Tíðindi

Eigum við að ræða þetta tilboð…

  26/06/2012október 24th, 2021No Comments

Sumri tekið að halla og nær dregur að jólum hvort sem fólki líkar betur eða verr. Þá er ekki slæmt að hlýja sér í huganum við framandi ævintýri og alls ekki verra ef ævintýrin atarna eru mögulega innan seilingar.

Það er án efa raunin með tilboð bresku ferðaskrifstofunnar Travelwasp sem býður stórkostlega sextán nátta lúxusferð til Egyptalands í nóvember og desember og það fyrir algjört klink eða tæpar 99 þúsund krónur miðað við meðalgengi dagsins. Það reyndar miðast við flug frá London.

Það er ekkert annað en bráðfyndið verð miðað við það sem í boði er. Annars vegar er um að ræða níu nátta dúllerí í strandbænum Hurghada við Rauðahafið á fimm stjörnu hóteli með öllu inniföldu. Eins og það út af fyrir sig sé ekki nóg fyrir 99 þúsund krónurnar bætir ferðaskrifstofan við sjö nátta siglingu um Níl í kaupbæti.

Ritstjórn hefur farið slíka siglingu og fer hún kyrfilega á lista yfir magnaðar lífsreynslur enda vart stigið í land á Níl án þess að rekast á rústir horfinna menningarheima. Þá er siglingin sjálf yndisleg og enginn þarf að óttast riðu eða sjóveiki á Níl.

Grípi menn tækifærið nú þegar flugfélögin og ferðaskrifstofurnar auglýsa tilboðsferðir til London sem grimmast er þangað komist fyrir 25 til 35 þúsund krónur á mann og jafnvel þó bætt sé við þeirri upphæð er umrædd ferð til Egyptalands á algjörlega stórkostlegum prís.

Nánar hér.