Reglan hefur verið sú, og á henni standa flugfélög yfirleitt grjóthörð, að viðskiptavinir fá engar tilslakanir frá reglum eða er sýndur mikill skilningur á sérstökum aðstæðum hverju sinni. Það kemur því ánægjulega á óvart að flugfélagið Iceland Express skuli hafa leyft nokkrum einstaklingum í flugi frá Alicante fyrir skömmu að brjóta reglur um farangursþyngd og gera það brosandi.

Stundum er bara jákvætt að sýna lipurð jafnvel þó það kosti fyrirtækið peninga í það og það skiptið. Komi viðskiptavinurinn aftur hefur mikið meira áunnist en það.
Strangt til tekið skrifast það kannski frekar á lipran starfsmann við innritun á vellinum í Alicante en endilega starfsmenn Iceland Express að fjórir farþegar fengu að fara um borð án vandkvæða og án þess að greiða aukagjöld fyrir yfirvigt þó allir væru þeir með tveimur kílóum meiri farangur en leyfilegt er.
Kveða reglur flugfélagsins á um að greiða þurfi aukalega fyrir allt umfram 20 kíló af farangri og gildir einu hvort taska vegur 21 kíló eða 32 kíló. Umframgjald þarf að greiða og í dag er það hvorki meira né minna en 7.500 krónur á mann. Hefur ritstjórn Fararheill vitnað þrívegis mikla reikistefnur, leiðindi og óánægju viðskiptavina við innritun vegna þess að starfsmenn standa glerharðir á að 10 milligrömm yfir 20 kílóin kosti viðkomandi 7.500 krónur aukalega.
Einhver kann að benda á að með því að hleypa fjórum einstaklingum, og mögulega fleiri, í gegn með þyngri farangur án þess að greiða gjöldin hafi flugfélagið í þessu tilviki orðið af 30 þúsund krónum hið minnsta.
Peningalega er ekki hægt að mæla því mót en ritstjórn Fararheill leyfir sér að fullyrða að með því að sýna lit í slíkum tilvikum er flugfélagið að fá mun meira en það í góðu umtali. Með öðrum orðum; það þótti nógu merkilegt að flugfélagið sýndi slíkan lit að um var talað eftir að heim var komið og vitaskuld á jákvæðum nótum. Og fyrir flugfélag hvers fortíð er flekkaðri en sebrahestur er það ómetanlegt.






