Margir þarna úti vita ekkert um þá tugi erlendra flugfélaga sem fljúga til og frá Íslandi á þessum síðustu og verstu. Spænska lággjaldaflugfélagið Iberia Express er eitt þeirra og þar er nú verið að henda út æði ljúfum afsláttum á hinum og þessum túrunum.

Flug til Spánar? Ekki gleyma að taka Iberia Express með í reikninginn. Skjáskot
Iberia Express, dótturfyrirtæki hins fræga spænska flugfélags Iberia, flýgur til og frá Íslandi í allt sumar þó reyndar eini áfangastaður flugfélagsins héðan sé höfuðborgin Madríd.
Samkvæmt könnunum okkar gegnum árin hefur Iberia Express ekki beint verið að rokka neitt í verðlagningu þó fyrirtækið kalli sig lággjaldaflugfélag. Sá titill dettur dauður niður um leið og Icelandair býður betur.
Það á þó aðeins við um flug til og frá Madríd en þangað flýgur Icelandair líka yfir sumartímann. Langi fólk á ódýrt flakk innan Spánar er Iberia Express ekki vitlaus kostur. Flugfélagið þessa stundina að bjóða flug aðra leið til Mallorca niður í 3.500 kallinn á kjaft frá Madríd. Nú eða 2.900 kallinn aðra leið frá Madrid til Malaga á Costa del Sol.
Um að gera að skoða úrvalið ef flakk um Spán þykir móðins 🙂 Allt um þetta hér.







