Alltaf súrt þegar sjálfskipað lággjaldaflugfélag reynist vera dýrari kostur en Icelandair. Reyndar gott betur en súrt. Það bara stínker lélegt stöff.

Lággjaldaflugfélagið dýrast til Parísar??? Ekki láta það koma þér á óvart.

Og það er raunin til Parísar á köflum í sumar samkvæmt stikkprufum okkar á verði á flugi fram og aftir til Parísar í júní, júlí og ágúst. Gróflega má segja að þessa stundina finnur þú flug fram og aftur með tíu kílóa handfarangurstösku með til Parísar hjá bæði Icelandair og franska flugfélaginu Transavia kringum 26 þúsund krónum lægst. Wow Air hins vegar er að að heimta tæplega 28 þúsund krónur fyrir sömu herlegheit.

Aðdáendum Wow Air bregður eflaust í brún að Icelandair sé allt í einu farið að bjóða betur en lággjaldaflugfélagið til Parísar og það meira segja með handfarangurs meðferðis en ekkert slíkt er frítt lengur hjá Mogenssyni.

Reyndin þó sú að Wow Air er ekkert lággjaldaflugfélag lengur frekar en að Donald Trump sé vitsmunavera. Skúli Mogensen er ekki aðeins búinn að leggja blátt bann við að viðskiptavinir hafi meðferðis eina munnþurrku um borð heldur og hækkar hann svo lítið beri á öll sín fargjöld.

Hættu nú að láta plata þig. Þú átt ekkert ótæmandi bunka af seðlum undir koddanum 😉