Tíðindi

Hvert skal halda í verslunarferð?

  31/10/2011apríl 12th, 2014No Comments

Eins og venjulega þegar hart er í ári langar mörgum Íslendingnum að leggja land undir fót og fara eins og eina verslunarferð fyrir jólin og freista þess að gera góð kaup erlendis. En ólíkt fyrri tíð þegar krónan okkar hélt sínu gagnvart öðrum myntum heimsins er svo ekki lengur. Það er því ekki alveg ljóst hvar Gunna kaupir nýju skóna þessi jólin og græðir á því.

Ritstjórn Fararheill lagðist yfir þetta með nokkrum vel völdum einstaklingum sem ferðast hafa mikið að undanförnu.

EVRÓPA

Enginn vafi leikur á því að víða í Evrópu er enn hægt að gera ágæt kaup þó krónugreyið sé helsært og liggjandi í blóði sínu. Þá er ekki aðeins verið að meina að finna borg þar sem H&M er til staðar með sín ágætu verð á fatnaði heldur einnig tekið tillit til gisti- og matarkostnaðar auk þess hversu auðvelt er að komast þangað því enginn nennir heim aftur með tonn af pokum og gjöfum og þurfa að millilenda á leiðinni.

Því miður eru hvorki ferðaskrifstofurnar né flugfélögin mikið að hugsa um þá sem neita að eiga viðskipti við íslenska kaupmenn. Þau lönd Evrópu þar sem sannarlega er hægt að gera betri kaup en hér á landi eru einfaldlega ekki í boði í beinu flugi.

Kaupmannahöfn er í raun ekki kostur. Verðlag í borginni er hátt og hærra á fatnaði og glingri en hérlendis. Þá er gisting, matur og afþreying þar einnig afar dýr á íslenskan mælikvarða. London er heldur ekki góður kostur. Hún er almennt dýr og kaupmenn þar hækka verð sín fyrir jólin. Sömuleiðis er ekki ókeypis neitt að dvelja þar né éta. Osló, Stokkhólmur eða París eru heldur ekki fýsilegir staðir til að gera góð kaup.

Að öllu jöfnu mælir ritstjórn Fararheill með Lissabon í Portúgal eða Róm á Ítalíu en í báðum borgum fæst furðu margt fyrir krónuræfilinn. Þangað er þó ekki flogið beint og reyndar langt í frá og því kjánalegt að mæla með þeim sérstaklega.

Besta evrópska borgin til jólainnkaupa að mati ritstjórnar er Berlín. Verðlag er þar merkilega langt undir Evrópumeðaltali, þangað er flogið beint og finna má úrvalsverð á gistingu þar með litlum fyrirvara.

NORÐUR AMERÍKA

Vestanhafs er staðan öðruvísi því þar er fjöldi afsláttarverslana, outlet, sem sumar hverjar selja orðið vörur sem enn eru seldar fullu verði hér á Fróni. Það fyrir utan hefðbundnar verslanir sem flestar eru ekki dýrari en gengur og gerist hérlendis. Þó stendur valið í raun aðeins milli Boston og New York því ellegar er fólk farið að eyða tveimur dögum bara til að komast til og frá. Þannig er hægt að gera ágæt kaup í Minneapolis en þangað er langt flug.

Ritstjórn mælir með Boston þó úrval verslana sé meira í New York. Þangað er aðeins styttra að fara, jólastemmningin er meira í ætt við evrópska stemmningu en stress á stress ofan eins og í þeirri síðarnefndu. Á móti kemur að úrval afsláttarverslana er jú minna í Boston og nágrenni. Á móti því kemur hins vegar að gisting í Boston er ódýrari en í New York sem er vinsæl jólaborg meðal Bandaríkjamanna sjálfra.

[polldaddy poll=“5628226″]