Það getur verið dálítið erfitt að fylla hjartað af unun og gleði í nútímalegum stórborgum með sína fráhrindandi stálturna og fólk á götum úti sem er frosnara en sjávarútvegsráðherra að svara spurningum um Samherja.

Alvöru fólk sem býr í Hong Kong sem lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna…
En viti menn! Sumar borgir, sem virðast algjörlega gleðisnauðar við fyrstu sýn, reynast vera svo troðnar af forvitnilegu fólki, sem lætur sér ekki allt fyrir brjósti brenna, að engu lagi er líkt. Borgir á borð við Hong Kong sem tilheyrt hefur Kínaveldi um rúmlega tuttugu ára skeið en gekk áður í nafni Bretlands um áratugaskeið.
Heimamenn hafa haft það tiltölulega súpergott um áratugi þrátt fyrir allt og allt en fljótt að láta í sér heyra ef gengið er á þeirra hag. Eins og blóðug mótmæli í borginni bera vitni um þegar þetta er skrifað. Sem merkir að hér er, þrátt fyrir húrrandi kapitalisma um áratugaskeið, fólk sem gefur kommúnistastjórninni í Beijing löngutöng ef valdhafar ætla að vaða yfir allt og alla á skítugum skóm.
PS: mótmælin í Hong Kong enda fyrr en síðar og vonandi með því að kínversk stjórnvöld kjöldraga þann embættismann sem ákvað að herða snöruna fyrir Hong Kong. Það aftur merkir að nú er rétti tíminn til að bóka gistingu í borginni. Verð á gistingu lækkað um 30 prósent á skömmum tíma vegna mótmælanna og þjóðráð að negla súpergistingu núna. Það er jú ekki eins og mótmælendur komi í veg fyrir að við ferðafólk þvælumst um og skoðum það helsta og besta 😉
Magic of Hong Kong from Timelab.pro on Vimeo.







