Guði sé lof fyrir flugfélagið Norwegian. Fyrirtækið verið á nippinu fjárhagslega um margra mánaða skeið en sjá samt tækifæri í að bjóða Íslendingum flugferðir til Spánar í vetur.

Norwegian ætlar að bjóða áfram beint flug til Spánar í vetur þrátt fyrir allt.

Ekki alveg glænýjar fréttir en fréttir hætta ekkert að vera góðar þó farið sé að slá aðeins í þær.

Flugfélagið Norwegian, sem er aðeins á lífi vegna styrkja frá norska ríkinu, ætlar að hefja að nýju beint flug til Spánar frá Íslandi strax í byrjun nóvember. Frá þeim tíma reglulegar áætlunarferðir þrisvar í viku.

Kemur ekki á óvart. Það er jú ekki eins og óskabarnið Icelandair hafi nokkurn tíma boðið landanum upp á beinar ferðir til Alicante eða annarra vinsælla áfangastaða á Spáni. Eftir að Wow Air dó drottni sínum höfum við ekkert val. Flugfélagið hyggst líka bjóða upp á beint flug til Osló í Noregi í desember næstkomandi.

Kemur hins vegar oggupons á óvart sökum þess að norska flugfélagið hefur slúttað 60% allra áfangastaða sinna síðustu mánuðina og ætlar að einbeita sér að flugi sem færir seðla í bankann. Íslandsflug er auðvitað þar fremst í flokki 🙂

Príma mál. Fátt sem bætir heilsuna meira en ferðalög og að komast í kynni við annan og betri kúltúr en finnst í Breiðholtinu, Hólmavík eða í Sandgerði er þess virði þúsund prósent.

En auðvitað aðeins svo lengi sem það tekst að halda kóróna í skefjum. Lítið varið í spennandi áfangastað ef hann dregur þig til dauða fimm mínútum síðar.