Um tíma nú hefur flugfélagið Icelandair auglýst töluvert nýjan vef þar sem finna má upplýsingar um allar þær dásemdir sem komast má í kynni við í skosku borginni Glasgow.

Síðan atarna, seeglasgow.is, virðist við fyrstu sýn kannski vera heiðarleg upplýsingasíða og ekki er verra að hún er á íslensku með íslensku léni í þokkabót.

Þarna er þó flagð undir fögru. Að síðunni stendur ferðamálaráð Glasgow-borgar í samvinnu við Icelandair og svo sem ekkert út á það að setja… nema ef vera skyldi að þar er ekki stafur um að Glasgow er ekki alveg sú allra öruggasta að heimsækja eins og nýlegar fréttir bera með sér:

„Glasgow is UK´s most violent area“

 

Auðvitað þykir ferðamálaráði Glasgow ekki ástæða til að hvetja ferðalanga til að hafa varann á sér og þaðan af síður Icelandair. Ekki svo að skilja að þar sé meira að óttast en annars staðar. Alls staðar er hætta fyrir hendi en það er lágmark hjá flugfélagi sem setur blessun yfir auglýsingabækling erlendra stórborga að vera heiðarleg og kynna ALLT en ekki bara sumt. Eða hvað….

Fararheill hefur eytt tíma í Glasgow oftar en einu sinni. Hér er okkar vegvísir um borgina. Njóttu.