Það var hlegið og gert grín, bæði opinberlega og í laumi, að Skúla Mogensen þegar hann ákvað að stofna íslenskt lággjaldaflugfélag á sínum tíma. Nú er sama lið að hlæja og gera grín að tveimur aðilum sem reyna að koma aftur á fót slíku íslensku flugfélagi.

Samkeppni er ALLTAF af hinu góða en Fréttablaðið hlær út í eitt.
Sigurður Mikael Jónsson, blaðamaður á Fréttablaðinu, skýtur föstum skotum að þeim Ástþóri Magnússyni og Hreiðari Hermannssyni, en báðir einstaklingar leita nú leiða til að koma á fót nýju íslensku lággjaldaflugfélagi í stað Wow Air.
„Friðardúfan Ástþór eygir nú þann langþráða draum að bjarga íslenskri þjóð í eitt skipti fyrir öll með því að leysa WOW air og Skúla Mogensen af hólmi.”
„[…] Að því sögðu þá er þetta kapphlaup hótelstjóra og annarra aflraunamanna í ranghugmyndum við að stofna næsta alþýðu-WOW sannkölluð veisla að fylgjast með fyrir hina vantrúuðu sem fullir efasemda reyna að skilja hina drengslegu bjartsýni frumkvöðulsins. Skúli hlýtur að skjálfa.”
Það var og. Tómt bull, tjara og ranghugmyndir að reyna að koma aftur á einhverri samkeppni í flugi hérlendis. Best að láta Icelandair ráða ríkjum eins og fyrirtækið gerði í áratugi með hæstu flugfargjöldum á byggðu bóli.
Ýmislegt má segja um Ástþór Magnússon og klárlega eru margir hissa á framtaki hótelstjóra Stracta en hvers vegna að níða skóinn af fólki sem er að reyna? Skúli Mogensen sýndi sannarlega fram á að lággjaldaflugfélag getur vel þrifist hérlendis. Hann varð bara of gráðugur á leiðinni í bankann. Engar líkur á öðru en að þeir Ástþór og Hreiðar hafi lært þá lexíu ef þeim tekst ætlunarverkið. Komist annaðhvort verkefnið á laggirnar fjölgar ferðamönnum til landsins á sama tíma og við kannski komumst út fyrir minna.
Hvað í ósköpunum er rangt við það?







