Tíðindi

Hvers vegna er þetta bara í lagi hjá flugfélögum og ferðaskrifstofum?

  16/01/2013desember 24th, 2013No Comments

Ímyndaðu þér eitt augnablik hversu lengi þú myndir versla við verslun þar sem auglýst tilboð eða bestu verð hverju sinni eru meira og minna falin og það kostaði þig bæði tíma og jafnvel peninga að fá nánari upplýsingar hjá starfsmanni verslunarinnar.

Þannig verslun er ekki til í raunveruleikanum enda myndi hún líklega ekki lifa lengi. Þvert á móti gera verslanir sérstaklega út á sértilboð og sín bestu verð, merkja slíkar vörur í hólf og gólf og auglýsa þær með áberandi hætti í blöðum eða við innganginn. Sumar verslanir tiltaka sérstaklega fjöldann á tilboðsverði þannig að enginn verði fúll á móti ef viðkomandi kemur löngu seinna og fárast yfir að tilboðsvaran sé uppseld.

En hvers vegna sættum við okkur við slíkt þegar um er að ræða innlend flugfélög og ferðaskrifstofur?

Icelandair, Wow Air og margar ferðaskrifstofurnar komast aftur og aftur upp með að auglýsa lágmarksverð og gera svo kröfu um að viðskiptavinurinn eyði sínum tíma og jafnvel peningum í að finna viðkomandi tilboð. Til að bæta gráu ofan á svart auglýsa sömu aðilar takmarkað sætaframboð á sínum sértilboðum en láta þess ekki getið, ólíkt raunverulegum verslunum, hvers mörg eintök eru nákvæmlega á tilboði.

Dæmi um þessa makalaust aumu þjónustu er hnappur á heimasíðu Icelandair þar viðskiptavinum gefst kostur á að sjá allra bestu verð til allra áfangastaða flugfélagsins hverju sinni.

Þar má vissulega sjá verðin en ætli fólk að bóka á þeim verðum skal gjöra svo vel og fara að leita í bókunarvél Icelandair. Það er í sjálfu sér ekki erfitt en getur verið ansi tímafrekt því bókunarvélin sýnir aðeins fargjöld tvær vikur í einu. Eigi „besta“ verðið við um flug í byrjun september má því fletta heilt kvöld til að rekast á það og bóka.

Og gangi þér vel að fá aðstoð gegnum síma á skrifstofum þessara aðila. Í stöku tilfellum er fólk kannski reiðubúið að hjálpa þér en oftar er það ekki í boði enda tímafrekt og ritstjórn Fararheill hefur verið beðin um að greiða sérstaklega fyrir slíka þjónustu. Eins og símakostnaðurinn sé nú ekki nóg.

Enn ein ástæða til að beina viðskiptum okkar til ferðaþjónustuaðila sem koma fram við okkur eins og manneskjur og gera okkur kleift að finna nákvæmlega þau fargjöld sem auglýst eru ódýrust á sem fljótlegastan hátt. Íslensku aðilunum finnst greinilega sjálfsagt mál að eyða okkar tíma enda tími okkar allra ekkert verðmætur.

Þeir aðilar sem sýna þá lágmarksþjónustu að fela ekki sín bestu tilboð eru næstum allir aðrir en þeir innlendu. Aðilar sem hafa áttað sig á að því meiri virðingu sem þú sýnir hugsanlegum viðskiptavini því líklegra er að sá ferðist á þinum vegum. Flugfélög á borð við easyJet og Norwegian bjóða margvíslega leit að fargjöldum og vikur og mánuði fram í tímann og meira að segja Delta og SAS bjóða upp á að skoða hvern einasta mánuð og sjá þannig í fljótu allra ódýrasta fargjald í boði í hverjum mánuði.