Blóm, bíó, kvöldverður, súkkulaði, koss á kinn. Allt þetta er svo 2012 krakkar mínir og tími til kominn að gera eitthvað RAUNVERULEGA frábært fyrir þann sem þú elskar.

Ætlar einhver að efast um rómantíkina við að labba saman eftir síkjum Amsterdamborgar á Valentínusardaginn?
Fararheill til bjargar.
Við vitum hversu erfitt það er fyrir elskendur, í það minnsta þá elskendur sem muna eftir deginum, að finna eitthvað nýstárlegt, frumlegt og frábært til að gefa sínum heittelskaða. Enda eru allir í ritstjórn gamlir eða nýir elskendur sjálfir.
Svo okkur datt í hug að benda á þessa fjóra möguleika. Allir eru þeir í boði daginn sem allt snýst um og einfalt að lengja daginn þann í langa borgarferð sem væntanlega mun ekki skyggja á ástarfílinginn.
Við vildum mjög gjarnan benda á fleiri möguleika en það er ekki margt í boði á þessum árstíma og sérstaklega ekki þann 14. febrúar sem er jú dagurinn sem öllu skiptir. Ekkert spennandi að fara neitt óvænt þann 13. febrúar.
A) PARÍS með Icelandair
Alveg sama hvað þú reynir. Það er ekki hægt að toppa París fyrir elskendur. Icelandair flýgur þangað þann 14. febrúar og þú drífur þig í að bóka fyrir tvo án þess að segja betri helmingnum frá neinu. Valentínusardagurinn kemur upp á miðvikudegi og þú gerir gott betra og bókar langa helgarferð fram á sunnudag. Báða dagana eru laus sæti þegar þetta er skrifað. En nei, þetta er ekkert sérstaklega ódýrt en hvaða máli skipta peningar þegar ástin er annars vegar? Vanti þig hugmyndir er óvitlaust að draga makann með í Monceau garðinn. Verð á mann 72.680 krónur.
B) LONDON með Wow Air
Sami díll hér. Þú kaupir far með Wow Air Valentínusardaginn og vekur ástina með kossi og flugmiða snemma þann dag. Síðan taka við dúlludagar í London sem er fjarri því á pari við París en góð samt. Til að mynda gætirðu tryggt þér miða með fljótabátnum Thames Clipper sem fer frá miðborginni sem leið liggur til Greenwich. Greenwich er kjaftfull af rómantískum stöðum og í versta falli getur staðurinn sem allar klukkur heims miða við ekki verið alslæmur. Siglingin til baka að kvöldlagi er ekkert nema rómans undir björtum ljósum helstu kennileita borgarinnar. Svo brosir þú þínu blíðasta ef hann vill fara á leik með Arsenal. Laus sæti með Wow þann 14. og til baka þann 18. febrúar. Verð 54.700 á mann.
C) AMSTERDAM með Icelandair
Vingjarnlegt fólk, nema þeir sem töpuðu peningum á Icesave, yndislegir kanalar meðfram krúttlega mjóum byggingum og heilan helling af stórkostlegum söfnum að sjá og skoða. OK, kannski eru söfn ekkert mega-rómantísk en bæði eiga eftir að finna skjálfta í hnjánum á lýstri brú yfir einn af skurðum borgarinnar með nóttina allt í kring. Svo er það rómantískara en margur heldur að leigja tvö hjól og stoppa hvar sem ykkur lystir til að kyssast og kjammast eins og enginn sé morgundagurinn. Svo má alltaf leigja húsbát, loka dyrunum og stunda linnulaust kynlíf fram eftir árinu. Engar áhyggjur, Hollendingar þekkja Valentínusardaginn. Laus sæti 14. til 18. febrúar með Icelandair. Verð á mann 89.360.
D) KAUPMANNAHÖFN með Wow Air
Það er ekki hægt að fá leið á Kaupmannahöfn, okkar gömlu höfuðborg þar sem skáld og mikilmenni lærðu það sem til þurfti til að gera okkur sjálfstæð. Hún er vel rómantísk líka og nægir í því sambandi að nefna Amalíuborg. Stórglæsilegar upplýstar byggingarnar er fín byrjun á yndislegu kvöldi því ef það er nógu gott fyrir Margréti drottningu og hennar fólk er það nógu gott fyrir þig. Svo reynirðu þitt besta til að troðast inn á Noma sem er besti veitingastaður heims hvorki meira né minna. Ef það gengur illa þá er hægt að heimsækja ástarengilinn Cupid hvers styttu er að finna á Thorvaldsen listasafninu. Laus sæti 14. til 18. febrúar. Verð á mann 34.820.
* Laus sæti og verð rétt kl. 21 fimmtudaginn 17. janúar 2013. Hafa skal í huga að verð breytast fljótt hjá flugfélögunum.
Heimasíða Wow Air hér.
Heimasíða Icelandair hér.







