Margt og mikið er í boði í heiminum af sérstæðum ferðamöguleikum og mörgum finnst það mest heillandi ferðalögin. En það er ábyggilega nýmæli að Íslendingum gefist kostur á að heimsækja Norður-Kóreu sísona.

Það er kannski ekki allra að þvælast til Norður-Kóreu en væntanlega situr ýmislegt eftir í kolli eftir slíka ferð. Það er í boði með íslenskri ferðaskrifstofu í júní
Jebb. Við áttum bágt með að trúa þessu heldur en þetta er raunverulega í boði hjá íslensku ferðaskrifstofunni Trans-Atlantic á Akureyri. Sú býður ferð til þessa annars lokaða lands með stoppi í Kína í júní í fylgd tveggja sagnfræðinga sem til þekkja, þeirra Árna Hermannssonar og Jóns Ingvars Kjaran.
Reyndar er aðeins um þriggja daga stopp að ræða í Norður-Kóreu og þar helst skoðaðar minjar um hinn mikla, ekki, leiðtoga Kim Il Sung, en einnig er farið í rútuferð að hlutlausa beltinu svokallaða sem er einskismannslandið sem skiptir Norður- og Suður-Kóreu.
Flogið er til Beijing og þar gist áður en haldið verður með flugi til Pyongyang og áhugasömum gefst tækifæri til að lengja ferðina í annan endann og eyða tíma í Kína áður en heim er haldið.
Þetta er skemmtilegt og væntanlega ferð sem verður í minnum höfð þeirra sem hana fara en hún er ekki alveg ókeypis. 572 þúsund krónur skal greiða fyrir Norður Kóreu ferðina eingöngu en Kórea plús Kínapakki með kostar á manninn 752.615 krónur miðað við tvo saman.






