Segir kannski allt sem segja þarf um íslenska fjölmiðla þessi dægrin. Mest lesna „fréttin” á vef Vísis þegar þetta er skrifað er sú að flugfélagið Wow Air sé með útsölu.

Hversu lágt er hægt að leggjast hjá fjölmiðli? Nú höfum við svarið við því. Vísir og Fréttablaðið henda öllum venjum blaðamennsku fyrir róða og auglýsa, sem stórfrétt, útsölu hjá flugfélagi.

Hvað skal segja um slíkt? Munum ekki eftir sérstökum „fréttum” þegar Icelandair, Vueling, Norwegian, Delta, Transavia, AirBerlin eða SAS bjóða feitan afslátt á flugferðum til og frá landinu. Né heldur hefur það þótt markvert hingað til í fjölmiðlum að Eggert feldskeri, Skífan eða Nespresso bjóði afslætti á tilteknum vörum sínum.

Ekki nóg með að Vísir/Fréttablaðið auglýsi útsölu Wow Air fyrirfram heldur gerir vefmiðillinn sér sérstaklega mat úr þessu efni og birtir tvær aðrar fréttir um málið þennan daginn. Það jafnvel þó að upprunalega „fréttin” um útsöluna hafi birst í Bretlandi og útsala flugfélagsins því beinst að Bretum en ekki Íslendingum. Eða hefur einhver séð íslenska útsölu-auglýsingu Wow Air?

Neibbs. Enda Wow Air ekkert að auglýsa nein afsláttarkjör fyrir Íslendinga. Þeir eru að hugsa um Breta en ekki Íslendinga. En hinn 23 ára gamli músikant Bergþór Másson, nú blaðamaður á Vísi, telur þetta vera stórfrétt.

Ætli Bergþór hafi fengið fría ferð með Wow Air fyrir að fjalla sérstaklega um breska útsöluherferð flugfélagsins? Okkur er spurn.

Bíðum spennt eftir stórfréttum um útsölur og afsláttarkjör annarra flugfélaga á viðskiptavef Vísis eftirleiðis…