Þú dýrkað Chicago um ár og raðir og langar þangað án þess að þurfa að auka yfirdráttinn í bankanum. Þá er kjörið að kíkja á vef Wow Air þessa stundina og negla fargjald fram og aftur til þess staðar og annarra fyrir þetta 100 prósent lægra verð en fæst hjá Icelandair.
Já, við sögðum 100 prósent. Það er jú prósentustærðfræðin milli 27 þúsund króna og 54 þúsund króna en fyrir 27 þúsund kemst einstaklingur nú beint til Chicago og heim aftur með Wow Air í september meðan sama manneskja þarf að punga út 54 þúsund krónum að lágmarki til sama staðar í sama mánuði með Icelandair.
Það sannarlega verðmunur sem flest venjulegt launafólk munar um. Hjón, par eða tvær vinkonur eða tveir vinir spara sér gróflega 50 þúsund krónur á fluginu til Chicago í september ef verslað er við Wow Air umfram Icelandair.
Ók, hér gott að muna að um tímabundið tilboð er að ræða og negla þarf pakkann eigi síðar en á miðnætti þann 27. ágúst. Í ofangreindu dæmi er um sardínufarrými að ræða og þú þarft að greiða feitan extrapakka fyrir nærur og sokka í bakpoka hjá Wow Air meðan slíkt er innifalið hjá Icelandair.
Hér er heldur ekki aðeins Chicago í boði fyrir áhugasama. Afsláttarkjör Wow Air gilda um alla áfangastaði flugfélagsins á tilteknum fjölda sæta. Þegar þau sæti eru bókuð hækkað fargjaldið að lágmarki um helming frá því sem nú er boðið.







