Lítil furða að Bretar, sem fyrir svo ekki margt löngu réðu hálfum heiminum og það bókstaflega, falla hraðar niður skynsemis- og virðingarstigann en Ólafur Ólafsson, svindlari og almennur skíthæll með meiru. Nú íhuga þeir bresku að banna alfarið drykkju um borð í farþegavélum.

Skallaboltinn Ólafur Ólafsson nýtur trausts hjá engum. Sama hægt að segja um bresk stjórnvöld. Skjáskot
Þar á bæ þykir orðið fullreynt að veita áfengi á flugvöllum og í flugvélum á leið frá Bretlandi enda kunni þarlendir sér engin forráð í þeim efnum. Vandamálið sé stórt og mikið og sérstök þingnefnd skoðar nú hvort banna eigi alfarið sölu áfengis í þarlendum flugstöðvum snemmdags og meina fólki alfarið að kaupa áfengi í fríhöfnum flugstöðva og neyta þess um borð.
Víst kann um helmingur Breta ekki með áfengi að fara svo vel sé. Rösklega sama hlutfall og kaus yfir sig útgöngu úr Evrópusambandinu sem hefur þýtt feita lækkun á pundinu og dýrtíð fyrir allt og alla í landinu. Að líkindum sami helmingur þjóðarinnar og stritar lon og don fyrir launum sem vart duga fyrir klósettpappír og mat á borðið dags daglega. Sami helmingur og hefur orðið útundan síðan Margrét Thatcher ákvað að þeir ríku í Bretlandi ættu skilið að verða enn ríkari á kostnað allra annarra.

Spennandi samferðafélagi. Eða ekki. En óþarfi að láta nokkur skemmd epli skemma fyrir risastórum meirihluta flugfarþega.
Það er því skiljanlegt að það fólk missi sig í áfenginu erlendis eða jafnvel strax á flugvellinum við brottför enda ekki alveg gefið að fara erlendis í frí þó vissulega hjálpi mikið hvað flugfargjöld lággjaldaflugfélaga eru orðin lág.
Við Íslendingar þekkjum þetta mætavel. Í það minnsta sú kynslóð fólks sem nú þakkar fyrir hvern dag á lífi og við heilsu fram að dánardegi. Það fólk borgaði fúlgur fjár fyrir eina einustu ferð erlendis hér árlega fyrir ekki svo margt löngu og þurftu margir að spara mánaðum saman til að eiga fyrir tveggja vikna pakkanum á Kanarí. Sama fólkið og var svo glatt að komast burt frá streðinu og stressinu að partíið hófst stundvíslega klukkan sex um morguninn í flugstöðinni um leið og öryggisleitinni lauk. Einn bjór, svo annar og annar og annar og einn til að minnsta kosti.
Sjaldan fréttist af sérstökum vandamálum vegna láta Íslendinga um borð hér áður fyrr. Það að vísu að hluta til sökum þess að blaðamenn voru ekki á tánum þá fremur en nú en að stórum hluta líka vegna þess að þó leiðindi hafi átt sér stað gengu fáir svo langt að vera með uppsteyt, læti, háreysti eða skítkast meðan á flugi stóð. Í versta falli var tekinn fjöldasöngur og svo var klappað í 15 mínútur ef flugstjórinn lenti sæmilega.
En það var líka þegar pláss um borð var nægilegt til að hægt væri þokkalega að skipta um skoðun, farþegi við glugga komst á klósettið án þess að vekja alla í sætisröðinni og sá sem sofnaði í miðjusæti lenti ekki með hausinn á öxlinni á farþeganum við hlið sér við minnsta dott.
Ástæða þess að breskir miðlar missa sig nú yfir drykkju um borð er ný þarlend skýrsla sem sýnir að ólæti um borð í breskum vélum sem leitt hafa til handtöku hefur aukist um heil 50 prósent eins og BBC skýrir frá.
Það hljómar ægilega ekki satt. En hér eins og annars staðar er alltaf jákvætt að skoða „smáa letrið.“ Í ljós kemur að 387 farþegar í breskum vélum fengu lögreglufylgd frá borði frá febrúar 2016 til febrúar í ár.
Vissulega 50 prósent aukning frá sama tímabili árið áður þegar 255 farþegar voru handteknir vegna óláta um borð. En líka algjör brandari þegar haft er í huga að 270 milljónir farþega fara um breska lofthelgi með flugi ár hvert. Í því samhengi reyndust 0.0014 prósent allra farþega vera með læti og vesen. Hlutfall sem kemur ekki einu sinni fram í frétt BBC af málinu.
Ekki svo að skilja að haugfullir farþegar eða farþegar með læti og látalæti séu spennandi samferðafélagar. Alls ekki. En áður en dregnar eru ályktanir af dapurri fréttamennsku BBC og annarra er ráð að skoða heildarmyndina. Skoða skóginn í heild sinni en ekki einblína á stöku tré.
Þá er líka í meira lagi dapurt að hagsmunaaðili fyrir bresk flugfélög, Airlines UK, segir í tilkynningu að bann þurfi að setja við neyslu áfengis um borð sem KEYPT ER Á FLUGVÖLLUM fyrir brottför. Ekki orð um að banna sölu áfengis UM BORÐ. Tvískinnungurinn ríður sjaldan við einteyming þegar peningar eru annars vegar og sá yfirgnæfandi fjöldi flugfarþega sem ræður mætavel við drykkju fyrir og á meðan flugi stendur á að njóta vafans. Það kallast lýðræði 🙂







