Svo þig langaði svo mikið að heimsækja Philadelphia í Bandaríkjunum. Þá er ráð að flýta þeirri ferð. Icelandair, sem boðið hefur beint flug þangað í rétt rúmlega ár er að slátra ferðum þangað töluvert á undan áætlun.

Gleði fyrir ári síðan þegar Icelandair hóf beint flug til Philadelphia í Bandaríkjunum. Það áætlunarflug styttist verulega í annan endann.

Við búin að leita nokkuð ítarlega á annars þriðja heims bókunarvef Icelandair og við finnum ekki eitt einasta flug til Philadelpha eða frá Philadelpia frá og með næsta nóvember. Það þrátt fyrir að fréttatilkynningar flugfélagsins á sínum tíma gæfu til kynna fjórar flugferðir á viku langt fram í janúar 2019 að minnsta kosti.

Ahhh. Sérfræðingar Icelandair reynast ekki vera sérstakir sérfræðingar þegar allt kemur til alls. Flug til Philadelphia alls ekki að gera sig. Sem er eina ástæða þess að flugi er slátrað löngu áður en til stóð.

Ók,  óvitlaus hugmynd þegar illa árar og Bandaríkjaflug Icelandair sannarlega ekki að rokka í neinu tilliti eins og fram kemur í yfirlýsingum forsvarsmanna vegna slælegs gengis á hlutabréfamarkaði.

En það eru væntanlega einhverjir þarna úti sem höfðu bókað til og frá Philadelphia í nóvember, desember og janúar. Hefði það ekki kallast lágmarks þjónusta að láta viðkomandi vita að flugfélagið væri að fella niður tæpa þrjá mánuði af áætlunarflugi? Neibbs. Hvergi staf að finna um að Philadelphia sé að detta út af sakramentinu hjá Icelandair.

Súperþjónusta sem endranær…