
Milljónamæringar að stjórna Icelandair er ekki vænlegt til árangurs. Skjáskot
Ný stjórn Icelandair verður kosin þann 12. mars næstkomandi og þar feitur biti í verðlaun. Sem kannski útskýrir hvers vegna afar óeðlilegt fólk sækir það hart að komast að krásunum. Það allt saman fólk sem staðfestir hið fornkveðna að margur verður af aurum api.
Stjórnarformaðurinn
Stjórnarformaðurinn Úlfar Steindórsson bætir tæplega átta milljónum króna í veskið árlega fyrir sjö til átta klukkustundarlanga fundi með fríu bakkelsi. Það klink í ofanálag fyrir 100 millur fyrir að forstjórast hjá Toyota á Íslandi. Plús auðvitað hugsanlegan hagnað af tugmilljóna króna hlutabréfaeign hér og þar. Kauði fær enga samkeppni í stjórastólinn þrátt fyrir að á hans vakt frá mars 2017 hafi hlutabréfaverð í flugfélaginu LÆKKAÐ UM 92 PRÓSENT!
Stjórnarmenn
Hver stjórnarmaður fær skitnar 330 þúsund krónur mánaðarlega fyrir þessa tvær til þrjár klukkustundir annan hvern mánuð. Klínk auðvitað fyrir stjórnarmennina en heil mánaðarlaun fyrir skatt fyrir atvinnulausa í landinu. Atvinnulausa sem telja yfir 20 þúsund þegar þetta er skrifað.
Þar situr nú þegar fólk á borð við Svöfu Grönfeldt. Sú pían stjórnarmaður í „vel reknum” Landsbankanum fyrir Hrunið. Banka hvers hrun kostaði skattborgara landsins hundruði milljarða króna. En Svafa slapp súpervel fyrir horn. Hún losaði sig við allt sitt ÁÐUR en bankinn féll með brauki og bramli og sötraði margarítur á sólarströnd meðan húsin heima brunnu. Topp eintak af manneskju.
Eins og Íslendingar hafi efni á því að dæla takmörkuðum fjármunum erlendis er kjörið að í stjórn situr Bandaríkjamaðurinn John F. Thomas. Sá þykir merkilegur pappír enda háttsettur í einhverju spilltasta ráðgjafarfyrirtæki heims: McKinsey. LEITUN er að öðru fyrirtæki sem hefur gert eins mikið upp á bak síðustu ár og áratugi og gert heiminn verri fyrir tugmilljónir fólks.
Guðmundur Hafsteinsson situr í stjórn og vill hanga áfram á kjötbitanum. Kauði gerði gott mót sem starfsmaður Google um tíma. Það á sama tíma og Google hætti að nota slagorðið Don´t be evil og fór að vera evil. Guðmundur settist í stjórn Icelandair í byrjun árs 2018. Síðan þá hefur hlutabréfaverð flugfélagsins hrunið um 92%.
Við gætum haldið áfram…
Af nógu af taka. Einn frambjóðenda, Steinn Logi Björnsson, stjórnaði fraktflugfélaginu Bluebird um tíma og henti þar íslenskum flugmönnum út í hafsauga til að spara aurinn. Steinn var líka rekinn frá Húsasmiðjunni og Skiptum á sínum tíma. Hjá Skiptum, móðurfélagi Símans, töpuðu hluthafar milljörðum króna meðan Steinn var aðal. Annað toppeintak af manneskju.
Annar frambjóðandi, Þórunn Reynisdóttir, hefur gert fína hluti sem forstjóri Úrval Útsýn undanfarin ár. En það þarf eitthvað að vera að í kollinum á fólki sem hefur þann starfa að hámarka auð eins mesta svindlara Íslandssögunnar: Pálma Haraldssonar, eiganda Úrval Útsýn. Sá skíthæll varð ríkur á að svindla og svína á Íslendingum gegnum Sölufélag garðyrkjumanna og hann var stór þátttakandi í þeim bólufélögum sem settu landið næstum á hausinn í Hruninu. Félög eins og Fons, FL Group og Glitni.
Hvar er sardínufólkið?
Icelandair hefur á síðustu áratugum leitað á náðir ríkisins með aðstoð og peninga oftar en tölu verður á komið. Fyrirtækið okraði, og okrar, svo feitt á innanlandsflugi að innanlandsflugið hefur hrunið og ríkið þar að koma til bjargar með milljarða króna niðurgreiðslum. Tæplega milljón manns nýttu sér innanlandsflug fyrir og kringum Hrunið eða áður en erlendir ferðamenn voru hér fjölmennir. Árið 2019, á mega-annatíma í ferðaþjónustu slefaði fjöldinn rétt yfir sjö hundruð þúsund. Icelandair henti íslenskum flugþjónum á haugana nýverið um leið og það fólk tók ekki 50 prósenta launaskerðingu möglunarlaust.
Icelandair náði aðeins tvívegis að sýna hagnað á mesta uppgangstíma í íslenskri ferðamannasögu. Það tók þriggja ára gamalt Wow Air aðeins rúmlega þrjú ár að ferja fleira fólk til og frá landinu en Icelandair með sína hálfrar aldar sögu. Það jafnvel þó Icelandair setti ýmsar hindranir á veginn til að það yrði raunin.
Líkurnar á að sú stjórn sem nú situr eða það fólk sem vill í sætin geri gott mót fyrir íslenskan almenning, starfsfólk Icelandair eða hlutafjáreigendur ERU ENGAR! Til þess er fólkið of góðu vant, of ríkt og of ólíkt því fólki sem nýtir sér Icelandair til að fljúga til og frá.
Það vantar venjulega fólkið. Fólkið sem situr í níðþröngum sætum aftast til að komast á draumastaðinn einu sinni eða tvisvar á ári án þess að taka lán í bankanum.
Eða hvað haldiði að stjórn af milljónamæringum hafi hugmynd um hvað meðalJón og meðalGulli vilja í flugi? Alls enga.







