F erðalög eru snúin þessi dægrin en vonandi verður brátt hægt að þvælast um aftur án þess að vera með grímu lon og don. Það er bara mínus ef fólki langar að kynnast heimafólki og eða siðum heimafólks á hinum og þessum stöðunum.

Svona þangað til svo verður er óvitlaust að prófa sig í föstudagsgetraun Fararheill. Það gerir allar ferðir ljúfari og skemmtilegri að vita eitthvað um áfangastaðinn. Og sem fyrr er harðbannað að svindla og gúggla og mausast. Þetta á að reyna aðeins á heilasellurnar 😉

PS: Rétt tæplega 500 spreyttu sig á fyrstu föstudagsferðagetraun okkar. Aðeins níu einstaklingar fengu allt rétt í fyrstu atrennu þar.

Ferðagetraun númer tvö

Hvar er þetta tekið?
Frakkland lengi dregið flesta erlenda ferðamenn til landsins. En hvaða land var í öðru sæti 2019?
Hvar er þessi mynd tekin?
Handaband og eða koss er kjörið ef þú hittir nýtt fólk á förnum vegi erlendis. En á ákveðnum stað í einu landi er lágmarkið að halla höfði saman og nebbanum líka. Hvar er það?
Istran Jota heitir þjóðarréttur lands eins í fjarska. Hvaða lands?
Náttúrulaugar finnast víða um heim. En hvar heldurðu að þessi sé?
Einn er sá vegur í veröldinni sem kallaður er Beinabraut. Ekki af því að sá vegur sé beinn og breiður heldur af því að þúsundir létust við gerð hans og fengu gröf í eða við veginn. Hvar er sá vegur?
Hvað heitir hæsta fjall Danmerkur?
Ferðagetraun númer tvö
Þú varst með {{userScore}} af {{maxScore}} rétt
{{title}}
{{image}}
{{content}}