Var Play dautt í fæðingu? Ekki miðað við stuðið á milljóna króna opnunarpartíinu sem haldið var um mitt ár 2019. Ekki miðað við tuttugu þúsund lofsgreinar um fyrirtækið í fjölmiðlum á sínum tíma.
Á heimasíðu flugfélagsins er enn verið að lofa flugmiðum til sölu FLJÓTLEGA. Það sama loforð og hefur verið á síðunni frá sumri 2019. Síðasta færsla á síðunni er frá síðasta vori þar sem segir að fyrirtækið fari að bjóða flugferðir strax um haustið 2020. Það mun vera þriðja skiptið sem fyrirtækið auglýsir slíkt og ekki stóð steinn yfir steini í fyrri skiptin.
Einmitt það!
Síðan hefur fátt eitt frést ef frá er talin grein í viðskiptamogganum í nóvember síðastliðnum. Þar segir að Play hafi tryggt sér lendingarleyfi á Englandi og Írlandi. Þar segir ennfremur að fyrirtækið hafi þó ekki verið komið með flugrekstrarleyfi!
Spurning hvernig hægt er að tryggja sér lendingarleyfi fyrir flugfélag sem ekki er formlegt flugfélag en vegir viðskipta eru líklega eins og vegir Guðs.
Óskandi væri að fá aftur samkeppni í flugi til og frá landinu. Fargjöld í þær rellur Icelandair sem þó fljúga á þessum síðustu og verstu eru þetta 80 – 200 prósent hærri en var þegar samkeppni var til staðar. Nýtt norskt lággjaldaflugfélag, Flyr, er að hefja starfsemi þar í landi þrátt fyrir bölmóð og kreppu í bransanum.
Í öllu falli algjört lágmark að uppfæra helv… heimasíðuna svona til að byrja með. Ellegar eyða stofnfénu í annað stórkostlegt milljónapartí svona áður en allir missa endanlega trú.







