
Hugsanlegt gos á Reykjanesskaga þýðir ekki bara svefnleysi í Grindavík. Mynd Ferlir
Burtséð frá vík Grinda, sem enginn virðist hafa hugmynd um hvað merkir, er annað við hugsanlegt gos eða eldsumbrot á Reykjanesskaga sem gerir það að verkum að það er arfaslæm hugmynd að bóka flug erlendis eða heim erlendis frá á næstunni.
Fyrir því tvær ástæður helstar:
Annars vegar að Keflavíkurflugvelli yrði að líkindum lokað hið snarasta ef gos hefst í grenndinni. Ekki hvað síst ef um einhvers konar sprengigos verður að ræða með tilheyrandi reyk og ösku. Alls óljóst er hversu lengi slík lokun myndi vara.
Hins vegar að jafnvel þó Keflavíkurflugvöllur héldist opinn við náttúruhamfarir er ekki víst að vegir um Reykjanesskaga yrðu opnir bílaumferð. Sem merkir að jafnvel þó rellan bíði í Keflavík er hreint ekkert víst að þú komist eitt né neitt á staðinn frá höfuðborginni. Sérstaklega ekki ef fljótandi hraun vellur til norðurs. Ólíklegt að lögregla leyfi Jóni og Gullu að skottast um Reykjanesbrautina sísona við þær aðstæður. Jafnvel þó suðurleiðin yrði opin myndi sá spotti stórauka þann tíma sem þarf til að komast í Leifsstöð. Þá gæti túrinn úr höfuðborginni og til verið tveir, þrír tímar hvora leið fyrir sig.
Óspennandi í meira lagi. Best að hinkra með flugferðir á meðan partí er þarna neðanjarðar. Nema Akureyri eða Egilsstaðir heilli fyrir flug til Kanarí…







