Hmmm. Landsmönnum fjölgað um sextíu þúsund á augabragði og erlendum ferðamönnum fjölgað um milljónir á skömmum tíma. Plús auðvitað að hér eru fleiri þúsund erlendir verkamenn að störfum hér og þar í landinu. Hvers vegna er þá eina innanlandsflugfélag landsins með böggum Hildar 365 daga á ári?

Landsmönnum fjölgar. Ferðamönnum fjölgar. En enginn notfærir sér þjónustu Air Iceland Connect? Mynd Flugfélag Íslands
Mörg ár og dagur síðan jákvæðar fregnir birtust síðast af Air Iceland Connect, dótturfélagi Icelandair, en það félag er hið eina sem býður reglulegt áætlunarflug til hinna ýmsu áfangastaða innanlands.
Nú fregnir af því að fækka eigi ferðum til Egilsstaða og Ísafjarðar og selja tvær af sex rellum flugfélagsins.
???
Ekki svo að við hér séum nokkrir sérfræðingar í flugfræðum en okkur þykir ljóst að flugfélag sem tapar peningum hægri vinstri á einhverjum mesta góðæristíma í Íslandssögunni sé að gera eitthvað alvarlega vitlaust.
Þegar þetta er skrifað kostar það einstakling 33 þúsund krónur að fljúga fram og aftur til Akureyrar eftir næstu helgi á allra ódýrasta pakkanum og það án tösku með Air Iceland Connect. Þegar þetta er skrifað er allra ódýrasta fargjald Air Iceland Connect til Egilsstaða í næstu viku og aftur án alls farangurs litlar 42 þúsund krónur!!!
Halló Akureyri! Vorum við búin að segja Halló Akureyri?
Fjörutíu þúsund krónur án töskudruslu fram og aftur í tvær klukkustundir til og frá Egilsstöðum??? Fimmtíu þúsund krónur án töskudruslu fram og aftur í áttatíu mínútur til og frá Akureyri???
Allt ósköp eðlilegt við það (ekki.)
En hvers vegna óeðlilegt?
Jú, sökum þess að fargjöld Air Iceland Connect eru víðsfjarri öllum eðlilegum viðmiðum. Á síðustu tveimur vikum hefur ritstjórn Fararheill bókað tæplega fjögurra tíma flug frá Osló til Tromsö og sömu leið til baka á rétt rúmlega þrettán þúsund krónur. Annar úr ritstjórn var að bóka flug frá Srí Lanka aðra leiðina til Góa á Indlandi í desember og heildarkostnaður án tösku heilar 29 þúsund krónur. Sá þriðji úr ritstjórn flýgur í fjórar klukkustundir frá Póllandi til Tyrklands í byrjun september MEÐ TÖSKU og greiðir fyrir það heilar 32 þúsund krónur.
Eru lesendur að sjá það sem við sjáum?
Það gengur einfaldlega ekki upp að okra 100 prósent á skotteríi innanlands á Íslandi þegar alls staðar í heiminum er komist um allar trissur flugleiðis á kostakjörum. Ekki þarf fjarlæga áfangastaði til. Lágmarksverð á flugi milli Köben og Árósa í byrjun september og til baka kostar innan við tuttugu þúsund krónur á haus. Flug fram og aftur milli London og Edinborgar fæst í lok ágúst á FJÓRTÁN ÞÚSUND KRÓNUR!!!
Og svo videre og svo videre.
Air Iceland Connect þarf að losa sig við rándýra yfirmenn sem fyrst og fara að bjóða nútímaleg fargjöld. Vissulega eru laun og kostnaður á Íslandi almennt hærri en gerist víðast hvar erlendis og sjálfsagt mál að greiða „aðeins extra” vegna þess. En mörg hundruð prósent extra? Nei takk.







