Úff! Flugvélaframleiðandinn Boeing virðist ekkert gera rétt þessa síðustu og verstu. Nú er komið upp úr dúrnum að tölvuhakkarar virðast eiga æði greiða leið að stjórnkerfum nýjustu þotna Boeing.

Allt í volli hjá Boeing með Max-vélarnar og ekki bara þær…

Æði merkileg grein hjá bandaríska vefmiðlinum Wired sem greinir frá því að tölvuhakkarar virðast eiga þokkalega greiða leið að stjórnkerfum nýjustu flugvéla Boeing.

Forráðamenn Boeing neita auðvitað öllu og lofa fögru en sagan sýnir að þeirra orð eru marklaus með öllu. Það er jú varla treystandi flugvélaframleiðanda sem tekur hagnað hluthafa framyfir öryggi farþega sinna…