Það þarf allnokkrar umferðir í þvottavélinni til að losna við skítarákirnar hjá Ísavía síðustu misserin. Á sama tíma fær eini alvöru alþjóðaflugvöllur landsins feita falleinkunn meðal notenda.

Víst er Leifsstöðin orðin helst til lítil fyrir þann fjölda sem um flugstöðina fer. Það afsakar ekki stínker lélega þjónustu samt…
Öll þessi séní og sérfræðingar í stjórn og bestu vinir aðal hjá Ísavía. Séní og sérfræðingar, það er að segja, í því að gera slæma hluti enn verri.
Allavega ef marka má neytendavefinn Skytrax. Þar skrá notendur upplifun sína af flugi og ferðum og þar fellur Leifsstöðin okkar feitt og duglega.
Þetta má glögglega sjá á meðfylgjandi skjáskoti af vef Skytrax. Þar fær Leifsstöðin einungis ÞRJÁR stjörnur af TÍU mögulegum fyrir ljúflegheit og góða þjónustu. Reyndar aðeins tæplega 150 notendur sem tjá sig um þjónustuna og víst er að tugþúsundir ferðast til og frá árlega en mjór er mikils vísir. 
Við gætum sett rúsínu í þennan pylsuenda með því að birta lýsingar notenda á þjónustunni í Leifsstöð að undanförnu en látum það vera enda óþarfi að sparka í liggjandi flugvöll…
Við hér þó með nokkrar ábendingar um það sem betur má fara í Leifsstöð svo allir verði sáttari:
A) Lækka verð á öllum veitingum – Hvers vegna kostar samlokudrusla meira í Leifsstöð en sama samloka kostar í rándýrum verslunum Hagkaupa? Hvers vegna kostar bjórinn jafnvel meira en á annatíma á Spot?
B) Hvers vegna ÞURFA ALLIR að rölta gegnum Fríhöfnina til að komast í biðsalinn? – Ef okkur langar í lakkrís og Baileys með fyrir flugið þá finnum við út úr því sjálf. Eftir langa bið í innritun langar okkur bara á barinn, fá okkur í svanginn eða bara setjast niður og hvíla bein. Ekki valsa nauðug um einhverja dýra verslun þar sem þjónusta er skorin við nögl á handalausum manni.
C) Hvers vegna senda lið í farþegavögnum út í Sandgerði til að stíga um borð þegar engin einasta rella er við flesta landganga við flugstöðina? – Ritstjórnarmeðlimir minnst sex sinnum fengið far út í rassgat í skítaveðri til að stíga um borð í rellu sem situr við ráðhúsið í Sandgerði. Það þrátt fyrir að fimm til sex landgangar við Leifsstöð hafi verið hundrað prósent lausir við flugvélar. Jú, víst er óvitlaust að heimta feita seðla fyrir príma stæði á háannatímum, en í miðjum desember er vægast sagt fíflalegt að henda liðinu í rútu sem svo rúntar um Suðurnesin öll áður en komið er að rellunni. Um hvern er verið að hugsa?
En hey! Hvað vitum við íslensku plebbarnir hér? Sams konar sérfræðingar og komu bankakerfinu á Íslandi á hliðina á fimm mínútum sléttum vita allt miklu miklu betur…







