Óhætt er að slá föstu að velflest okkar hér á norðurhjara sakna ekki margra hluta jafn mikið yfir harðasta veturinn en sjá til sólar. 

Frá Svíþjóð er ódýrara að njóta sólar í Góa á Indlandi en á Kanaríeyjum

Frá Svíþjóð er ódýrara að njóta sólar í Góa á Indlandi en á Kanaríeyjum

Það sama gildir um Svía sem er ástæða þess að þar í landi hafa menn tekið saman hvar hægt er að fá mesta sól á kropp, flestar sólarstundir, í janúar, febrúar og mars fyrir sem allra minnstan pening. Þar miðað við meðalverð á flug- og pakkaferðum og deilt í með fjölda sólarstunda yfir þennan tíma.

Kannski ekki neinar stórkostlegar fréttir hvaða lönd bjóða mestan yl og birtu enda auðvelt að skjóta á að það séu lönd næst miðbaug jarðar. En kannski örlítið meiri fréttir að sólarstundin fæst á lægsta verðinu frá Svíþjóð til Góa á Indlandi. Þar kostar hver sólarstund 1.454 krónur en þessa mánuði skín sólin kringum 70 stundir hverja viku.

Þangað er langt að fara og við náttúrulega njótum ekki sama lága verðlags á ferðum þangað og Svíar en til huggunar getum við hins vegar flogið beint til Kanaríeyja. Santa Cruz og Las Palmas eru í fjórða sætinu yfir ódýrustu sólarstundirnar umrædda þrjá mánuði. Þar eru að meðaltali 49 sólarstundir í viku og hver sú stund kostar Svíana 2.358 krónur.

Þar rétt á eftir koma staðir á borð við Havana á Kúbu, Orlando í Flórída, Balí og Grænhöfðaeyjar en allir þessir bjóða svipað margar sólarstundir. Hins vegar aðeins dýrara þangað að fara en til Kanaríeyja.

Að einhverju leytinu má heimfæra þetta hingað en kannski nálægt lagi að hækka meðaltalsverð um 20 til 40 prósent.