Hmmm. Við lesum í erlendum miðlum að fimm hættulegustu lönd heims séu þessi sem nefnd eru í fyrirsögninni: Tæland, Mexíkó, Brasilía, Belís og Indland. Getur það stemmt?

Stórhættulegt að heimsækja Indland samkvæmt nokkrum lögfræðingum á Nýja-Sjálandi. En er eitthvað að marka það?
Ólíklegasta fólk gerir sig gilt í fjölmiðlum erlendis. Þar á meðal lögfræðistofa í Chicago sem birti álit sem þykir fréttnæmt.
Rubens Kress & Mulholland heitir lögfræðistofa í Bandaríkjunum sem nýlega birti á vef sínum lista yfir hættulegustu lönd heims fyrir vestræna ferðalanga. Listinn atarna hefur ratað á síður Bændablaðs Nýja-Sjálands, Daily Mail og USA Today svo aðeins þrír fjölmiðlar séu nefndir.
Ýmislegt gott við úttekt þeirra bandarísku. Þeir meta ekki aðeins almennt almenna hættu gagnvart erlendu ferðafólki heldur skoða einnig hlutleysi dómstóla viðkomandi lands, umferðaröryggi og ekki síst aðgengi að læknum og hugsanlega aðstoð ef eitthvað bjátar á.
Só far, só gúdd. Ágæt úttekt per se. En nóta bene, Ísland er líka fjórtánda hættulegasta land heims í sömu könnun…

Klárlega hætta fyrir henda á stöku stöðum í Belís. En 99 prósent landsins er eitt himnaríki.
Við hér sammála því að öll ofangreind lönd geta verið varasöm fyrir erlenda ferðalanga en að þau séu hreint og beint hættuleg er tóm steypa. Þau aðeins hættuleg ef óvitiborið fólk þvælist um staði sem það á ekkert erindi á.
⋅ EF erlendur ferðamaður gerir uppsteyt gagnvart heimafólki í Tælandi er umsvifalaust kominn fjöldi innfæddra til að skakka leik og sýna Erlendi í tvo heimana. Gildir þá einu hvort Erlendur er með réttinn sín megin eða ekki. Það er hreint ágæt ástæða fyrir að engin erlend þjóð hefur nokkru sinni hertekið landið ólíkt öllum öðrum þjóðum á þessum slóðum. Hættu að gera vesen hvað sem á bjátar og þú ert almennt í súperfínum málum.
⋅ GLÆPAGENGI í Mexíkó eru klikkaðri en gengur og gerist. Morð og pyntingar þykja hin besta skemmtun og engu skiptir hvort um er að ræða heimamann eða erlenda ferðamenn. Gott ráð að sleppa ferðum til Mexíkó alfarið en landið of stórkostlegt til þess. Láttu nægja að flakka um í stærri hópum og líkurnar á að þú njótir lífsins nálægt hundrað prósentum.
⋅ BRASILÍA er eðli máls samkvæmt eitthvert stórkostlegasta land heims. Ofurborgir á borð við Ríó og Sao Paulo í og við einhver mögnuðustu náttúruundur heims. Auðvitað fer ýmislegt úrskeiðis í landi þar sem 55 milljónir manna lifa af 700 krónum á mánuði og hver hissa á að ríkir fölbleikir ferðamenn séu hátt á ránslista þeirra sem draga fram lífið á þeirri upphæð. Ferðastu um í hóp, aldrei mjög seint að kvöldi og haltu þig við vinsæla staði þess utan. Ekkert vesen.

Heilalausir ferðamenn auðvelt fórnarlömb misyndismanna í Brasilíu sem annars staðar. Hafðu hausinn á þér og allt verður frábært
⋅ EF marka má fréttir síðustu ár og áratugi er Belís villta vestrið 2018-stæl. Löggæsla skorin feitar við nögl en á Íslandi og það í landi þar sem morð og viðbjóður er daglegt brauð. En það á næsta aðeins við um höfuðborgina Belize City. Um leið og þú kemst út fyrir borgarmörkin finnurðu ekki aðeins fimm stjörnu landslag í allar áttir heldur og venjulegt fólk sem vill frekar brosa og gefa þér mat og gistingu en að þjösnast á þér eða eitthvað þaðan af verra.
⋅ OG þá að Indlandi. Svindlarar og þjófagengi um allar trissur vissulega en með góðri leiðsögn og varann á sér í miðborgunum er afar ólíklegt að nokkuð komi upp á. Víst hafa alvarlegar nauðganir og jafnvel morð á erlendum ferðamönnum komist í fjölmiðla undanfarin ár en þar næsta eingöngu um að ræða ferðafólk sem bakpokast eitt síns liðs á afskekktun stöðum eða ungmenni á vinsælum strandstöðum sem nota fíkniefni sem fást ódýrt víða og verða auðveld fórnarlömb í kjölfarið. Ekki fer sérstökum sögum af vandræðum annarra erlendra ferðalanga í landinu.
Að þessu sögðu er sjálfsagt að hafa í huga að lögregla og eða dómstólar í mörgum þessum löndum gefa nákvæmlega ekkert fyrir væl í erlendum ferðamönnum nema feit greiðsla komi fyrir. Víða í Asíu má sleppa við einföld og jafnvel alvarleg brot ef múturnar eru nógu háar og það gildir að hluta til líka í stöku löndum Mið- og Suður-Ameríku.
Trixið til að njóta allra ofangreindra landa, eins og reyndar allra landa alls staðar, er að sýna lipurð, kurteisi og vingjarnlegheit og nota til ítrasta þá bestu vöggugjöf sem þú fékkst; heilasellur 😉







