Þjóðráð að panta miða í dag og fljúga út sem allra fyrst hafi fólk áhuga að sjá villt afrísk ljón á safaríferð í Afríku. Niðurstöður sex ára rannsóknar leiða í ljós að í álfunni eru aðeins um 20.000 villt  ljón eftir.

Tíminn til að sjá þessar fallegu skepnum villtar í náttúru Afríku að renna út.

Tíminn til að sjá þessar fallegu skepnur villtar í náttúru Afríku að renna út.

Það eru sem sagt þrefalt færri ljón eftir í Afríku en haldið hefur verið hingað til og ljóst að krísuástand mun skapast í ferðaþjónustugreinum þar um slóðir enda safaríferðir langvinsælustu ferðir erlendra ferðamanna á öllum þeim stöðum þar sem slíkt er í boði og í þeim ferðum eru ljónin sannarlega konungur dýranna.

Það er því líklegt að núlifandi kynslóð sé sú síðasta til að vitna þessa glæsilegu ketti í álfunni og eru reyndar ljónin þar ekki þau einu við heljarþröm. Samkvæmt yfirvöldum á Indlandi eru einungis rúmlega 400 villt indversk ljón eftir á lífi og ekkert gengur að hefta veiðiþjófa þar fremur en í Afríku.

Þú hefur sem sagt sirka fimm til tíu ár til að vitna þessi stórkostlegu dýr eigin augum í báðum álfum. Eitthvað til að monta sig af við barnabörnin árið 204o…

Nánar hér.