Tíðindi

Húrrandi verðbólga hjá GB ferðum

  07/03/2009maí 11th, 2014No Comments

Þó enginn vafi leiki á að ferðalög hafi hækkað í verði eftir að krónan okkar yndislega veiktist hastarlega í aðdraganda bankahrunsins hér á landi er verðbólgan þess vegna óvíða meiri en hjá ferðaskrifstofunni GB ferðir.

Þann 5. mars tilkynna þeir um 35 þúsund króna afslátt á Foxhills golfvöllinn í tveimur ferðum í apríl. Verð á mann miðað við tvo saman eru sléttar 100 þúsund krónur. Sé veittur 35 þúsund króna afsláttur var raunverðið þá 135 þúsund fyrir fjórar nætur og golf á mann.

Fyrir utan að það sé rándýrt þegar hægt er að fá flug fram og til baka til London á vel undir 30 þúsundum er öllu verra að nákvæmlega sama ferð mánuði áður hjá GB ferðum kostaði 79 þúsund krónur á mann í tvíbýli. Enginn sérstök afsláttarkjör voru þá auglýst sérstaklega.

Verðmunurinn á mann milli þess að spila fjóra hringi á Foxhills í mars eða apríl er semsagt 55 þúsund krónur ef marka má að 35 þúsund króna afsláttur hafi verið gefinn í ferðunum í apríl.

Er það öllu meiri verðbólga en gengur og gerist og ráðleggur Fararheill.is áhugasömum að kanna sjálfir kostnað á eigin spýtur því hætt er við að það geti sparað mönnum tugþúsundir króna.

Sjá auglýsingar GB ferða hér fyrir neðan:

Fjórar nætur á verði tveggja á Foxhills

GB Ferðir og Icelandair Golfers bjóða upp á tvær golfferðir til Foxhills Club & Resort á einstökum kjörum fyrir meðlimi Icelandair Golfers. Skráðir meðlimir í Icelandair Golfers fá flug til London, 4 nætur með morgunverði ásamt 4 golfhringjum en greiða einungis fyrir 2 nætur. Foxhills hefur notið gífurlegra vinsælda meðal íslenskra kylfinga, enda völlurinn stórskemmtilegur og aðstaðan öll fyrsta flokks.

Dagsetningar:
19.-.23. mars (fimmtudagur-mánudagur)
26.-30.mars (fimmtudagur-mánudagur)

Verð: kr. 79.000 á mann í tvíbýli. Innifalið er flug með Icelandair, flugvallaskattar og bókunargjald, gisting með enskum morgunverði, 4 golfhringir ásamt aðgengi að heilsulind hótelsins.

Hér er svo tilkynning frá netklúbbi GB ferða þann 5. mars undir yfirskriftinni Apríl tilboð:

Apríl tilboð

GB Ferðir og Icelandair Golfers bjóða upp á tvær golfferðir til Foxhills Club & Resort á einstökum kjörum fyrir meðlimi Icelandair Golfers. Skráðir meðlimir í Icelandair Golfers fá flug til London, 4 nætur með morgunverði, 3 rétta kvöldverði ásamt 4 golfhringjum með samtals kr. 35.000 afslætti.

Dagsetningar:
13.-17.apríl (mánudagur-föstudagur)
20.-24.apríl (mánudagur-föstudagur)

Flugáætlun:
KEFLHR 07.40-11.45
LHRKEF 21.10-23.10

Verð: kr. 100.000 á mann í tvíbýli. Innifalið er flug með Icelandair, flugvallaskattar og bókunargjald, gisting með enskum morgunverði, 3 rétta kvöldverði á Nineteen Bar and Grill, 4 golfhringir ásamt aðgengi að heilsulind hótelsins.

GB ferðir