Tæplega milljarður manna lagði land undir fór á árinu sem leið samkvæmt tölum Alþjóðaferðamálastofnunarinnar fyrir árið 2008.
Heildarfjöldi ferðamanna var 924 milljónir manna, 16 prósentum fleiri en árið á undan sem þá var metár. Lætur því nærri að hartnær 1/6 hluti mannkyns hafi ferðast í fyrra þrátt fyrir að efnahagsþrengingar hafi sett strik í reikninginn síðustu þrjá mánuði ársins.
Ráð er fyrir gert að ferðaiðnaðurinn verði fyrir áföllum á yfirstandandi ári og ferðamönnum muni fækka til muna frá því sem verið hefur.






