Tíðindi

Hraðtilboð Icelandair

  14/06/2010júní 1st, 2014No Comments

Icelandair býður nú tilboðsverð til Minneapolis og Kaupmannahafnar í sólarhring. Gilda tilboðin aðra leiðina sem endranær sem vekur jafnan furðu enda fæstir sem erlendis fara fyrir fullt og allt. Jafnvel þeir sem það gera bíða vart eftir hagstæðu fargjaldi til þess arna.

Til Kaupmannahafnar er komist fyrir 13.900 krónur sem er 5980 krónum ódýrara en hefðbundið ódýrasta fargjaldið aðra leiðina þangað.

Til Minneapolis þarf að punga út 24.900 krónum sem er 32.930 krónum ódýrara en ódýrasta heðfbundna fargjaldið í boði í júní eða júlí.

Ekki er þó allt sem sýnist. Umræddar ferðir er aðeins hægt að fara í haust milli 1. september og 9. október.

Heimasíða Icelandair hér.