Annan daginn í röð býður Icelandair upp á svokallað hraðtilboð til tveggja áfangastaða sinna. Er um Helsinki í Finnlandi að ræða og Amsterdam í Hollandi. Ferðatími er frá byrjun september til byrjun desember. Tilboðið gildir til miðnættis í kvöld.
Til Helsinki höfuðborgar Finnlands verður komist á þessum tíma fyrir 14.900 krónur aðra leiðina eða 28.600 krónur báðar leiðir en til Amsterdam kostar önnur leiðin 14.900 krónur meðan flug fram og tilbaka kostar 31.100 krónur.
Eru skattar og gjöld öll innifalin og flogið á lægsta fargjaldaklassa.






