Tíðindi

Hópmálsókn gegn Tripadvisor

  20/10/2010maí 31st, 2014No Comments

Fyrr í þessum mánuði ákváðu hundruð hótel- og gistihúsaeigenda að hefja hópmálsókn gegn vefmiðlinum Tripadvisor en rekstraraðilarnir vilja meina að þar á bæ séu menn sekir uns sakleysi er sannað.

Eiga þeir við að forsvarsmenn miðilsins fjarlægja ekki slæmar umsagnir ferðafólks jafnvel þótt sannað sé að farið sé með rangt mál.

Tripadvisor þekkja margir enda einn allra fyrsti og nú vinsælasti umsagnarvefurinn í ferðamennsku á heimsvísu. Þar gefst gestum hótela tækifæri að segja álit sitt á hótelum og gistihúsum og gefa einkunnir.

Eins og gefur að skilja eru ekki allar einkunnagjafir vinsamlegar og oft stór orð látin falla sem milljónir lesenda sjá og draga sínar ályktanir af. Það fer illa niður hjá mörgum enda vefurinn svo vinsæll að umsagnir á honum geta ráðið hvort ákveðinn staður er vinsæll um áraraðir eða fór þráðbeint á hausinn.

Það fer í pirrur á eigendum enda verið sýnt fram á að samkeppnisaðilar sem aðrir nýta sér tækifærin til að níða önnur hótel á sama svæði og engum vörnum er við komið.

Talsmenn Tripadvisor segja vissulega lítinn hluta umsagna meiðandi eða kjánalegar en fjöldinn hafi engu að síður rétt fyrir sér.

Heimasíða Tripadvisor hér.