Af öllum borgum heims er það Sidney í Ástralíu sem þykir skemmtilegasta borg heims að mati lesenda ferðatímaritsins Conde Nast en niðurstöður árlegrar lesendakönnunar blaðsins voru birtar í vikunni. Er það hreint ekki í fyrsta sinn því borgin hefur unnið þennan heiður síðastliðin sjö ár.
Næst Sidney kom Flórens á Ítalíu og síðan San Francisco í Bandaríkjunum en borgirnar voru metnar eftir sex mismunandi þáttum; stemmningu, menningu, kurteisi heimamanna, úrvali gistimöguleika, veitingastaða og verslana.
Aðrar heimsborgir sem komust á topp tíu voru Bangkok í Tælandi, Ubad á Balí, Vancouver í Kanada, Cape Town í S.Afríku auk Boston, New York og Seattle.






