Það mega þau eiga Icelandair, Iceland Express og Wow Air að vera ekkert að fela áætlun sína á næsta ári langt fram á vetur. Öll hafa þau þegar tilkynnt um þær breytingar sem fastsettar eru og ferðaglaðir geta strax í dag farið að velta fyrir sér hvaða svæði eða borg skal heimsækja á næsta ári.

Mílanó er einn nýrra áfangastaða í boði í beinu flugi á næsta ári en aukinheldur má búast við lægri fargjöldum á ýmsum leiðum sem samkeppni ríkir á.

Mílanó er einn nýrra áfangastaða í boði í beinu flugi á næsta ári en aukinheldur má búast við lægri fargjöldum á ýmsum leiðum sem samkeppni ríkir á.

Gaman er frá að segja að ýmsir forvitnilegir staðir bætast við þá sem fyrir voru þó reyndar sé eftirsjá að nokkrum öðrum líka.

Spennandi er fyrir landann að komast þráðbeint til Mílanó á Ítalíu með Wow Air og Icelandair fær sannarlega plús fyrir að bjóða upp á Sankti Pétursborg í beinni. Sú borg er ótrúleg í alla staði en því miður hafa ferðaskrifstofur og flugfélögin fyrir löngu eyðilagt öll íslensk lýsingarorð og ritstjórn Fararheill sleppir því að reyna. Nægir að segja að enginn verður svikinn af ferð þangað.

Þá er ekki vitlaust að lyfta einni skál fyrir samkeppninni sem Fararheill fullyrðir að hafa aldrei verið meiri hérlendis. Iceland Express ætlar að takast á við Icelandair bæði til Boston og Osló í viðbót við Köben og London og Wow Air hyggst reyna sig við risann á flugleiðinni til Amsterdam. Þetta er bara frábært mál í alla staði því ólíkt því sem hlutafjáreigendur Icelandair Group halda þá græða allir á samkeppninni. Meira að segja Icelandair.

Stöku staðir reyndar missa sig alveg frá þessu ári. Hvorki Wow Air né Iceland Express halda áfram flugi til Kölnar og ritstjórn telur mikla eftirsjá að flugi Wow Air til Lyon. Það stórkostlega land er nánast óþekkt meðal Íslendinga því aðeins er flogið til Parísar. Að sama skapi eru í boði árlega allt að sex staðir í Bretlandi.

Sömuleiðis er miður að fyrir utan stöku flug til Barcelóna og Madríd er ekkert í boði á Spáni eða Portúgal annað en Alicante sem ritstjórn telur auðveldlega taka titilinn leiðinlegasta svæði Spánar alls og hefur skoðað hvern krók og kima á Íberíuskaganum.

Sé hægt að finna að fleiru í dagskrá þessara þriggja aðila er það kannski lítil fjölbreytni. Er svo fráleitt að skjóta eins og einu vikulega beinu flugi til Aþenu, Istanbúl, Kænugarðs nú eða Kairó eða Amman bara upp á fönnið eins og þar stendur?

Á meðfylgjandi korti sjást allir áfangastaðir sem ljóst er að verða í boði til og frá Íslandi 2013.


View Allir áfangastaðir í boði frá Íslandi árið 2013 in a larger map