Ýmislegt merkilegt er við þá ákvörðun Pálma Haraldssonar, oft kenndum við Fons, að losa sig við Ferðaskrifstofu Íslands sem er samheiti ferðaskrifstofanna Úrval Útsýn, Plúsferða og Sumarferða.

Pálmi Haraldsson er að losa sig við Úrval Útsýn, Sumarferðir og Plúsferðir og hefur verið opnað fyrir tilboð. Mynd af vef ÚÚ.
Það fyrirtæki keypti fjárfestirinn á slikk árið 2009 enda félagið á leið í þrot á þeim tíma eftir hörmulegan rekstur þar sem nákvæmlega ekki ein króna var lögð til hliðar til mögru áranna. Þurfti endurskipulagningu til að dæmið gengi upp og eru starfsmenn þess nú ekki helmingur þess fjölda sem var fyrir hrun.
Fyrirtækið er sagt í útboðslýsingu vera leiðandi í sölu utanlandsferða og eiga sér langa sögu sem samofin er ferðalögum landsmanna frá fyrstu tíð. Hið fyrra er rétt en hið seinna rangt. Ferðaskrifstofa Íslands ehf. er aðeins tíu ára gamalt fyrirtæki samkvæmt kennitölu þess og upphaf ferðalaga Íslendinga erlendis á sér aðeins eldri sögu en það.
Síðan Pálmi keypti hefur ferðaskrifstofan notast við flugvélar á vegum Iceland Express í ferðum sínum að mestu leyti til að ná fram samlegðaráhrifum en það fyrirtæki á Pálmi einnig eins og kunnugt er.
Athyglisvert er að þennan tíma hefur Pálmi í raun átt fjórar ferðaskrifstofur því Iceland Express hefur einnig haldið úti eigin ferðaskrifstofu, Express ferðir. Í stað þess að sameina eitthvað af þessum félögum hafa þau líklegast étið inn í hagnað hvors annars. Þá hefur líka vakið athygli að Sumarferðir og Plúsferðir skuli ekki hafa verið sameinaðar enda báðar að bjóða keimlíkar ferðir og oft þær sömu og Úrval Útsýn sem heita á flaggskipið í hópnum.
Ólíklegt verður að teljast að sala Ferðaskrifstofu Íslands, gangi hún í gegn, verði heillavænlegt skref fyrir ferðaglaða neytendur í landinu. Pálmi veit upp á hár sölutölur og vaxtarmöguleika fyrirtækisins, selur varla nema fyrir góðan skilding og gæti vel sett það sem skilyrði að kaupendur brúki áfram vélar Iceland Express í ferðir sínar að einhverju eða öllu leyti. Sem aftur þýðir að kaupendurnir verða að verðleggja ferðir sínar til að eiga fyrir reikningnum. Sem merkir að ferðir þessarar stærstu ferðaskrifstofu landsins verða áfram í dýrari kantinum.






