golfTíðindi

Breytileg verð á golfferðum Wow ferða

  19/09/2012febrúar 3rd, 2021No Comments

Svo virðist sem kostnaður við pakkaferðir Wow ferða taki breytingum svo ekkert beri á. Það á allavega við um golfferðirnar sem bæði hafa hækkað og lækkað síðan Fararheill gerði verðsamanburð á golfferðum ferðaskrifstofanna í byrjun ágúst.

Líkleg skýring í fljótu bragði gæti verið sú að í millitíðinni setti félagið sérstakt farangursgjald á allan farangur farþega en sú skýring heldur ekki vatni þar sem verð á stöku ferðum hafa einnig lækkað síðan í ágúst. Það virðist því ekki endilega borga sig að verða sér úti um golfferð með góðum fyrirvara.

Þannig var í boði í ágúst sjö nátta golfferð á Bonalba á Spáni fyrir 162.700 krónur á manninn miðað við tvo saman. Á vef Wow ferða nú kostar sama ferðin nú 158.800 krónur. Önnur sjö nátta ferð á La Sella þann 27. september kostar það sama nú og hún gerði í byrjun ágúst en ellefu nátta ferð á sama völl á sömu dagsetningu hefur hækkað úr 229.900 krónum í 234.900 krónur nú.

Slíkar verðbreytingar eru  ekki endilega slæmar þó venjan sé almennt ekki að pakkaferðir hækki eða lækki með skömmu millibili. Vissulega þýðir að neytendur verða að vera aðeins meira á tánum og tvítékka hlutina frá degi til dags en verðbreytingar þýða eðlilega líka að það er samkeppni í gangi. Og það eru góðar fréttir.