Icelandair býður nú næstu dægrin tilboðsverð til Billund í Danmörku og er komist fram og aftur á 24.700 krónur hafi fólk áhuga að fljúga þangað næsta mánuðinn til 22. október.

Fargjald aðra leið til Billund nú í boði hjá Icelandair á 13.900 krónur en hvorki staðurinn né tíminn réttur.
Það er ágætt boð fyrir þá sem eiga sérstakt erindi til Danaveldis en Billund per se er ekki staður fyrir langt stopp og sérstaklega ekki nú þegar hitastigið er ekki mikið hærra en hérlendis og september sérstaklega jafnan mjög blautur á þeim slóðum.
Vissulega enn opið í Lególand á þessum tíma en þá er mikið til upptalið sem við er að vera í bænum á haustmánuðum.
Tilboðið gildir til 24. september. Heimasíða Icelandair hér.






