Síðasta skiptið sem Iceland Express reyndi fyrir sér vestanhafs hlaut það snöggan endi fyrir um það bil ári síðan þegar ferðum þangað var skyndilega hætt sísona og til baga fyrir fjölmarga farþega þess. Nú hyggst félagið reyna vesturferðir á nýjan leik næsta sumar en flogið verður daglega til Boston frá júní.
Tilkynning um þetta var send fjölmiðlum í dag en þar kemur einnig fram að áfangastöðum félagsins í Evrópu mun fækka til muna í staðinn jafnvel þó tveir nýir staðir komi einnig til. Þeir staðir eru Osló og hinn gamalkunni Frankfurt Main, annar áfangastaður sem Iceland Express hætti ferðum til í vor með engum fyrirvara.
Ber að fagna því að samkeppni komist á aftur vestur um haf jafnvel þó Boston hafi orðið fyrir valinu en þangað flýgur Icelandair nú þegar og ekki frámunalega mikið þangað að sækja nema verslanir fyrir landann.
Hins vegar vekur athygli hvers vegna Iceland Express kýlir á Osló og Frankfurt. Til Osló var komist í sumar með SAS, Icelandair og Norwegian og það síðastnefnda hyggst fjölga þangað ferðum héðan eins og Fararheill hefur greint frá. Þá var meðal annars sú ástæða gefin fyrir að hætta að fljúga til Frankfurt Main í vor að sá völlur væri of langt frá Frankfurt fyrir farþega. Sem hann er reyndar.
Til grafar verða bornir einir sex áfangastaðir Iceland Express en áfram verður flogið til London, Kaupmannahafnar, Parísar, Alicante, Barcelóna og Varsjár plús Boston. Út detta Billund, Edinborg, Bologna, Basel, Gautaborg, Köln, Prag og Vilníus.
Skarphéðinn Berg Steinarsson, forstjóri Iceland Express, lætur hafa eftir sér í samtali við blaðafulltrúa félagsins í fréttatilkynningunni að með samkeppni vestur um haf muni verð þangað aftur lækka eins og síðast hafi gerst.
„Iceland Express kemur nú aftur inn á Ameríkumarkaðinn þar sem einokun hefur ríkt lengst af. Með samkeppni mun verð lækka til hagsbóta fyrir farþega. Auk flugs vestur um haf og aukinni tíðni á flesta áfangastaði okkar í Evrópu erum við að auka sætaframboðið úr 370 þúsund sætum í 480 þúsund sæti eða um 30%.“






