Starfsfólk við landamæravörslu á flugvöllum og ferjuhöfnum Bretlands hafa hætt við fyrirhugað eins dags verkfall sem hefjast átti á morgun.

Það verða engar meiriháttar tafir á flugvöllum London eftir allt saman en verkfalli starfsmanna hefur verið afstýrt
Anda bresk stjórnvöld og ekki síst skipuleggjendur Ólympíuleikanna öndinni léttar en verkfallið hefði sett stórt og alvarlegt strik í áætlanir allar og líklegt og tímann sinn hefði tekið fyrir tugþúsundir ferðamanna að komast leiðar sinnar á stærri flugvöllum, lestarstöðvnum og ferjuhöfnum.
Dagsetningin var engin tilviljun daginn áður en Ólympíuleikarnir hefjast en stjórnvöld voru reiðubúin að setja lögbann á verkfallið og því ekki hundrað prósent að af því hefði orðið.
Til marks um alvarleika málsins íhuguðu stjórnvöld einnig að reka hvern og einn einasta einstakling sem tekið hefði þátt í verkfallinu.






