Ekkert sérstakt er sagt í gangi hjá Icelandair þrátt fyrir að flugáætlun félagsins hafi raskast síðustu fimm daga í röð. Orsök þess má rekja til „einstakra vélabilana og reglubundinna öryggisskoðana“ samkvæmt svari Icelandair við fyrirspurn Fararheill.
Fram kemur í svarinu að aðeins sé um afar lítinn hluta farþega sem hafi orðið fyrir óþægindum vegna tafa undanfarna daga enda séu brottfarir félagsins um 60 á sólarhring þessa dagana. Heilt yfir gangi allt framar vonum.
Ekki er um neinar tilkynningar á vef félagsins í dag um frekari tafir en slíkar tilkynningar hafa birst á vef flugfélagsins frá því á föstudaginn var.
Vel kann að vera að allnokkrar tafir fimm daga í röð þyki forsvarsmönnum Icelandair ekki ýkja merkilegt vandamál en ritstjórn Fararheill er nokkuð viss um að farþegar félagsins sem í lenda eru ekki alveg á sama máli.







