Fararheill hefur áður bent lesendum sínum á kosti þess að skoða og eða bóka flug gegnum Google Flights. Ekki vegna þess að þar finnist endilega lægsta verðið heldur vegna þeirra upplýsinga annarra sem þar koma skýrt fram.

Ótrúlega miklar tafir á flugferðum Icelandair til þeirra helstu áfangastaða
Flugleitarvélar skipta tugum í heiminum og sitt sýnist hverjum um. Okkar reynsla er sú að engin ein slík vél er betri en önnur þegar allt kemur til alls. Meðan Dohop kann að finna lægsta verð á tilteknu flugi einn daginn þá reynist sú leitarvél sú dýrasta daginn eftir. Þetta gildir um þær allar og full ástæða fyrir ferðaþyrsta að eyða stundarkorni að þræða nokkrar slíkar vélar ef bóka á flug langt út í heim. Af þeim öllum er það aðeins Google Flights sem sýnir þér hvort tiltekin flugleið er á tíma eður ei heilt yfir.
Það er þar sem við stöldrum við æði merkilega tölfræði. Í ljós kemur nefninlega að Icelandair er vel á eftir áætlun á fjölmörgum helstu flugleiðum félagsins eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskotum.




Fyrir þá sem brúka Icelandair sem tengiflugfélag áfram út í heim er því óhætt að gera ráð fyrir að hálftími bætist við uppgefinn flugtíma og því þörf á aðeins lengri tíma en ella til að ná næstu vél ef því er að skipta.







