Svo virðist sem Wow Air hafi veðjað á réttan hest þegar ákveðið var að leggjast í langferðalög alla leið til Kaliforníu í Bandaríkjunum.

Ágæt sala virðist í ferðum Wow Air til og frá Kaliforníu
Þetta má merkja með því að skoða bókunarvél flugfélagsins og þar flug til og frá Los Angeles annars vegar og San Francisco hins vegar. Gagnrýnisraddir hafa lengi heyrst vegna slíkra langferða lággjaldaflugfélaga en áhættan á slíkum ferðum talin svo mikil að hvorki Ryanair né easyJet, tvö af stærstu lággjaldaflugfélögum heims, hafa áhuga á að prófa. Þaðan af síður ber á því að lággjaldaflugfélög Bandaríkjanna eða Kanada bjóði upp á Atlantshafsflug.
Þar sem fargjöld Wow Air hækka jafnt og þétt með meiri sölu má leiða líkur að því að sala til bæði L.A. og San Fran gangi vel. Yfir sumartímann er ekki lengur hægt að komast fram og aftur undir hundrað þúsund krónum samkvæmt lauslegri úttekt okkar og þar vantar inn allan farangur eins og alltaf. Það má því gera að því skóna að þeir sem eiga eftir að bóka þurfi að tæma bankabókina um 110 til 120 þúsund krónur að lágmarki.
Það langur vegur frá tilboðsfargjöldum Wow Air fyrr í vetur þegar fargjöld voru seld niður í 99 dollara aðra leið eða kringum þrettán þúsund krónur. Nú má fólk teljast heppið að negla aðra leiðina undir 50 þúsund krónum yfir sumartímann.
Forvitnilegt verður að sjá hvort fargjöld halda áfram á hækka frameftir næsta vetri og hvort dæmið gengur upp hjá Wow Air.







