Það er vandlifað almennt og ekki bætir úr skák þegar hlutir sem eiga ekki að fara úrskeiðis fara úrskeiðis. En það er eins og með annað, lög Murphy´s gilda ekki síður í háloftunum en á landi eins og einn viðskiptavinur Wow Air komst að fyrir skömmu.

Skúli og starfsfólk hans hjá Wow Air fær að heyra það á góðlátlegan hátt. Mynd Wow Air
Robert Bobbyperu Benediktsson er ekki að liggja á skoðunum sínum í löngu bréfi til Wow Air. Það sem meira er, hann gerir það á skemmtilegan og lýsandi hátt. Kannski besta kvörtunarbréf sem Wow Air hefur fengið ennþá?
Afsakið á meðan ég æli af gleði. Flaug til Alicante, gott og vel. Sýnið eina kvikvmynd, sem btw var ekki hægt að fá að hlusta á, ekki hægt að tengja headphones í neitt þannig að ég eyddi mínum tíma í að fylgjast með live flugi á skjánum með engu hljóði. Ég vona innilega að það sé framhald!
Ætlaði að kaupa mat með kreditkortinu mínu, ekki hægt, mátt ekki nota fyrirframgreitt kort í „kjörbúð“ háloftanna þannig að þú bara borar í nefið og borðar það, mkay ?. Ég finn hvergi minnst á það á heimasíðu ykkar btw.
Flugið heim til Íslands. Kem á flugvöllinn í Alicante og finn út að 20 kg taskan sem ég borgaði fyrir, einhverra hluta vegna þá af-hakaðist hún þegar ég var að kaupa miðann og allt það hafurtask sem því fylgir og ég þurfti því að punga út 54 evrur fyrir hana. Svo var ég með 5.5 kg í yfirvigt og þurfti að punga út 14 evrur per auka kg, semsagt 131 evru fyrir tösku sem ég hélt ég væri búinn að greiða fyrir heima, áður en ég lagði af stað í Alicante ferðina miklu. Ég hafði samband við ykkur útaf þessu og eina sem ég fékk var „Þér að kenna“ Svo æðislegt að fá svona viðmót, Skúli hlýtur að vera stoltur andskoti.
Ég var svo gífurlega heppinn að fá að velja sæti á leiðinni heim en það sama er ekki hægt að segja um konuna sem ég kynntist úti. Hún borgaði spes fyrir það að fá sín sæti en viti menn, þegar á völlinn var komið þá var það bara ekki í boði, Boðlegt ? Pifff! Anyways, ég fékk að setjast við hliðina tómu miðju sæti og í sætinu við gluggan situr falleg ung stúlka. Ég byrja að gera mig klárann, spenni beltið og viti menn, stólbakið virkar ekki, það bara sígur niður. Ég tilkynni þessa bilun og það eina sem freyju/freyjinn segir er „ég veit það“ Ég færi mig í miðjusætið og kynni mig og við stelpan byrjum að spjalla og það drepur tímann, sem betur fer.
Vélin komin í loft og þá hefst salan. Einhver 40 ára kall, með hár niður fyrir eyru gerir ekkert annað en að blaðra á fullu við farþega vélarinnar og þegar hann þarf að sinna vinnunni sinni þá lítur hann varla við kúnnanum, hann nánast afgreiðir hann með bakið snúið í hann, ég hef aldrei séð svona færni í að ignora nokkurn mann smile emoticon Þetta gekk svo langt að einn farþegi bað hann vinsamlegast að færa sig, þvílíkt var blaðrið í þessum óþolandi gaur.
Hvað um það! Ég hugsa mér gott til glóðarinnar eftir tösku óhappið og sæki headphones sem ég keypti mér á Spáni og plögga þeim í og bíð eftir the in flight movie. Nei nei, er það ekki sama og þegar ég flaug út og viti menn, það er ekki hægt að fá hljóð þannig að part deux af live coverage af hálofta leikfimi wowair er það eina sem er í boði. Eftir smá tíma ákvað ég að reyna að leggja mig, halla sætinu aftur en eftir 2 min fæ ég högg á sætið. Þetta gerðist þegar ég var alveg við það að dotta í fyrsta sinn á væi minni í flugvél. Með högginu fylgdi svo rödd sem sagði „þú mátt ekki halla sætinu svona“ Þarna var á ferð farþegi sem hefur svo sannarlega verið vakandi þegar flugþrælarnir ykkar fóru yfir security check listann því þetta var í miðju flugi for crying out loud!
Ok gott og vel. Þá snúum við okkur að lendingunni. Eftir að hafa verið meinað að halla sætisbakinu í miðju flugi þá hallaði ég mér bara fram í staðinn, gat varla skaðað nokkurn mann þannig. Vélin byrjar að lækka flugið og það tekur auðvitað sinn tíma. Einhversstaðar á leiðinni niður varð ég þreyttur af því að halla mér fram svo að ég ákveð að setjast bara í sætið og njóta þessarar yndislegu flugferðar wink emoticon wink emoticon wink emoticon Nei viti menn, þá bilar það sæti líka svo að ég þarf að færa mig aftur og núna fæ ég sæti við hliðina á eldri manni, sem er allt í lagi mín vegna.
Overall einkun – 10/10 og þann hluta fær Helga Braga því ég elska Fóstbræður. Þið fáið núll. Allt við ykkur er klístrað. Þið lofið öllu fögru en svo eruð þið ekkert betri en lággjalda flugfélag sem flýgur á milli jukk og æji nei ekki meira plz!. Meira að segja að hringja og lenda á símsvaranum ykkar er kístrað og hallærislegt. Eigandinn að monta sig, really ? Farmiðinn lofar góðu en svo þegar maður færir sig nær útlandinu þá þarf maður að byrja að kaupa allt áleggið og vitiði hvað ? Það er bara fokk dýrt þegar uppi er staðið, tala nú ekki um fyrir svona skíta þjónustu smile emoticon
Eigið góðan dag og í guðanna bænum ekki eyða þessu commenti mínu einsog Bjarni Ben og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gera. Takið þetta inná ykkur, meltið þetta og reynið að laga það sem laga skal.
Róbert







