Sprengju var varpað inn á flugleitarvélamarkaðinn í dag þegar Google kynnti til sögunnar nýja flugleitarvél sína en sú er einstök að því leytinu til að hún er leiftursnögg að leita og beintengd við flugfélögin sjálf.
Er reyndar aðeins um fyrsta skrefið að ræða því enn eru aðeins örfáar borgir í Bandaríkjunum í boði á google.com/flights en ljóst er að um einstaka leit er að ræða. Ekki aðeins er biðin engin og leitarvélin birtir kort af valinni flugleið ásamt ódýrasta verðinu í hvert skipti heldur birtir hún og ódýrustu fargjöldin á helstu staði í grennd við valin áfangastað.
Mesta nýjungin er þó beinlínutengingin við flugfélögin en á einni og sömu síðu google er hægt að ganga frá öllu nema að greiða fyrir flugið. Er þá viðskiptavininum beint til viðkomandi flugfélags.
Hafa margar flugleitarvélar hingað til haft þann háttinn á að vera milliliður í slíkum viðskiptum og taka þóknun fyrir hvert selt sæti en engu slíku er fyrir að dreifa hjá leitarvél Google.
Segir í tilkynningu um viðburðinn að ekki sé um neinar greiðslur að ræða milli flugfélaganna og Google. Er það til dæmis ólíkt Google Hotel Finder en þar greiða hótel ákveðið verð til að finnast fyrst og fremst við leit.
Leitarvél Google má skoða hér.






