Flugfélagið Icelandair hyggst blása til enn frekari sóknar á næsta ári eftir gjöfult ár í ár en ráð er fyrir gert að heildarfjöldi farþega flugfélagsins á næsta ári verði um tvær milljónir í heildina. Mun Icelandair bjóða upp á beint flug til Denver í Kolóradó í Bandaríkjunum á næsta ári.
Var skýrt frá þessum áætlunum í morgun en flug til og frá Denver mun hefjast í maí á næsta ári. Fyrst og fremst er fyrirtækið að hugsa um viðskipti Bandaríkjamanna en á þessu svæði ríkir almenn velmegun en flugferðir til Evrópu af skornum skammti. Mun þetta þó
Samhliða þessu mun flugfélagið fjölga ferðum til núverandi áfangastaða sinn nokkuð frá þessu ári og er ætlunin að auka flug um þrettán prósent. Verður þetta stærsta ár Icelandair nokkru sinni ef allt gengur eftir.
„Við erum að grípa tækifæri til þess að vaxa með arðbærum hætti,“ segir Birkir Hólm Guðnason, framkvæmdastjóri.
„Áætlanir fyrir yfirstandandi ár eru að ganga eftir og markaðsrannsóknir okkar erlendis sína að framundan eru möguleikar sem við viljum ekki láta framhjá okkur fara. Okkur er full alvara þegar við segjumst ætla að auka ferðamannastraum utan háannatímans og það hefur m.a. haft áhrif á þá ákvörðun að hefja flug til og frá Denver í Colorado allt árið um kring. Við sjáum fyrir okkur að vetraráætlun 2012-2013 verði meiri að umfangi en sumaráætlun var fyrir tveimur árum.“






