Tíðindi

„Google bara enn einn samkeppnisaðilinn“

  14/09/2011desember 5th, 2014No Comments

Eins og Fararheill.is greindi frá í gær er víða skjálfti í ferðaheimum eftir að Google kynnti til sögunnar nýja, og að því er virðist stórkostlega, nýja flugleitarvél sína formlega. Þykir sá vefur, þó á tilraunastigi sé, hafa töluvert umfram aðra slíka flugleitarvefi en á þeim markaði hefur verið mikil gróska undanfarin ár.

Ritstjórn leitaði álits Davíðs Gunnarssonar, markaðsstjóra íslenska leitarvefsins Dohop.is, á tíðindunum og tekur hann undir að við fyrstu sýn virðist vefur Google lofa afar góðu. Það breyti þó ekki því að aðeins sé um enn einn samkeppnisaðilann að ræða fyrir Dohop.

„[Þetta er] afskaplega vel gert hjá Google og klárlega ‘game changer’ í Bandaríkjunum. Náttúrulega aðeins í boði fyrir borgarpör innan USA eins og er. Ég geri fastlega ráð fyrir því að kollegar okkar hjá Kayak og Hipmunk [bandarískir ferðaleitarvefir], séu að svitna hressilega, en fyrir okkur er þetta bara enn einn samkeppnisaðilinn.

Eftir því sem ég kemst næst virðast þeir ekki finna allar þær tengingar sem við finnum og því höfum við enn vinninginn þar, en fyrir fjöldann er þetta við fyrstu sýn miklu betri græja til þess að finna flug á einfaldan hátt. Viðmótið er líklega það besta sem ég hef séð eins og við er að búast af Google.

Í framhaldinu verður auðvitað mest spennandi að sjá hversu fljótir þeir verða að bæta við áfangastöðum utan Bandaríkjanna og hvort þeir ætli sér að bæta við þeirri tækni sem við höfum og felst í því að finna flug á milli áfangastaða sem eru annars ótengdir og tengingar milli lággjaldaflugfélaga og legacy flugfélaga.“

Google Flight Search má kynna sér hér.