Þeirri spurningu hvort raunverulega kreppa hrjái Íslendinga nú fjórtán mánuðum eftir algert efnahagshrun landsins verður auðveldast svarað með því að líta á sölu íslenskra ferðaskrifstofa. Sala er almennt langt fram úr væntingum og nú eru allar golfferðir allra ferðaskrifstofanna fram á sumar uppseldar.
Seldi Úrval Útsýn sínar síðustu ferðir í dag og er þar með uppselt í golf í skipulögðum ferðum fram í maí nema einhver þeirra bæti við ferðum en engar fréttir hafa borist af því.
Virðist engu skipta verðlag á umræddum ferðum. Þær ódýrustu til Spánar fengust ekki ódýrar en 170 þúsund á mann og allt upp í 390 þúsund á mann séu taldar með þær ferðir ÚÚ til Tælands sem kallaðar eru golfferðir þó svo sé í raun ekki.






