Tíðindi

Undarlegustu hlutir á bókunarvef Dohop

  14/01/2010maí 17th, 2014No Comments

Heilum 32 þúsund krónum munaði á verði nákvæmlega sömu flugferðar milli London og Bangkok á þremur mismunandi tölvum sem leituðu á sama andartaki á hinum íslenska bókunarvef Dohop.com. Kunna menn þar á bæ engar skýringar á þessu og hafa í engu svarað fyrirspurnum Fararheill.is vegna málsins.

Komst ritstjórn Fararheill.is að þessu fyrir hreina tilviljun. Við gerum reglulega kannanir milli bókunarvéla og á stundum hafa verið notaðar tvær vélar samtímis. Í ljós hefur komið ósamræmi en í þeim tilfellum hefur aðeins munað nokkur hundruð krónum í versta falli.

Aldrei fyrr hefur þó munað 32 þúsund krónum á sömu ferð á sama tíma með sama flugfélagi. Um var að ræða bókun frá London til Bangkok og fékkst ódýrasta verð uppgefið 74 þúsund krónur fram og tilbaka með Quatar Airways. Ekki reyndist næg innistæða á kreditkorti fyrir slíkri upphæð þannig að hringt var í annan aðila sem elti uppi sömu ferð hjá gegnum Dohop.com. Fannst rétta flugið með rétta flugfélaginu en nú kostaði sama ferð 106 þúsund krónur.

Fyrsti aðilinn fór þá aftur gegnum ferlið ef vera kynni að ferðin hefði hækkað á þeim fjórum mínútum sem þetta tók en aftur fannst verðið 74 þúsund.

Til að ganga úr skugga um allt var hringt í þriðja aðilann sem fór sömu leið og fann flugið strax. Nema nú kostaði ferðin 94 þúsund krónur. Aftur hóf fyrsti aðilinn sömu leit á ný og aftur fannst verð upp á 74 þúsund krónur

Eðlilegt er að flug á flugbókunarvélum hækki eða lækki ört en ekkert skýrir þrjú mismunandi verð á einni og sömu ferðinni hjá sömu bókunarvél á sama tíma.

Fararheill.is hefur síðan prófað sama hlut á leitarvélunum Momondo, Hotwire, Vayama og Sidestep en ekki orðið vart við neitt þessu líkt. Markaðsdeild Dohop hefur ekki svarað fyrirspurnum Fararheill.is vegna málsins.