London reynist vera heimsins besti áfangastaðurinn árið 2016 að mati notenda risavefsins TripAdvisor sem hefur birt topplista sinn yfir mest heillandi borgirnar þessa stundina.

London besti áfangastaðurinn 2016 samkvæmt TripAdvisor. Mynd Kevin Poh

London besti áfangastaðurinn 2016 samkvæmt TripAdvisor. Mynd Kevin Poh

Slíkir listar eru birtir árlega hjá velflestum stærri ferðafjölmiðlum og eru sjaldan eins eða á einu máli. Þess utan eru listar TripAdvisor þeim annmörkum háðir að taka mið af fjölda einkunna ferðafólks og þar hafa vinsælustu borgir heims eins og London og París auðvitað forskot frá upphafi.

Engu að síður eru minnst tveir nýliðar á topp tíu listanum þetta árið. Í fimmta sætinu er Siem Reap í Kambódíu og í áttunda sætinu er Hanoi í Víetnam.

Listinn í heild sinni er:

  1. LONDON

  2. ISTANBÚL

  3. MARRAKESH

  4. PARÍS

  5. SIEM REAP

  6. PRAG

  7. RÓM

  8. HANOI

  9. NEW YORK

  10. UBUD