Ferðaskrifstofan Nazar auglýsir nú sértilboð til handa Íslendingum sem langar að sóla sig á tyrkneskum ströndum þetta sumarið. Það kallast páskatilboð en leiða má líkur að því að afslættir verði viðvarandi þetta árið.

Side er einn þessari fornu grísku staða sem nú tilheyra Tyrklandi.

Side er einn þessari fornu grísku staða sem nú tilheyra Tyrklandi.

Ekkert slæmt við páskatilboðið umrædda. Slegið er rúmlega 20 þúsund krónur fyrir fullorðna af tilteknum ferðum snemmsumars til Tyrklands í vikutúra eða svona um það bil á pari við þann afslátt sem innlendar ferðaskrifstofur aðrar hafa verið að bjóða að undanförnu.

Sjálfsagt að skoða það fyrir áhugasama. En það er dálítið undarlegt hvað verðlag yfir línuna hjá Nazar, sem sérhæfir sig í Tyrklandsferðum, hefur ekki lækkað neitt frá fyrra ári.

Undarlegt vegna þess að Tyrklandsferðir hafa misst mikinn glans af sömu ástæðu og Grikkland heillar takmarkað. Endalaus straumur stríðshrjáðs flóttafólks frá Sýrlandi og Írak vappar einmitt um þessa vinsælu strandbæi Tyrklands áður en þess er freistað að komast yfir á grísku eyjurnar. Og þó margir séu af vilja gerðir að hjálpa til þá er hungrað og ofsótt flóttafólk einhvern veginn ekki alveg hluti af dásemdarpakkanum sem auglýstur er.

Það útskýrir hvers vegna hingað til hafa selst HELMINGI færri ferðir til Tyrklands en venjan hefur verið undanfarin ár. Annars staðar njóta viðskiptavinir þess strax ef framboð er meira en eftirspurn en hér virðist Nazar ætla að kreista landann sem áður. Nema að páskatilboðið sé aðeins hið fyrsta af mörgum tilboðum þeirra næstu vikurnar.